Ægir

Årgang

Ægir - 01.01.1999, Side 33

Ægir - 01.01.1999, Side 33
SAMLEIÐ MEÐ ÍSLENSKUM SJÁVARÚTVEGI Jón Þ. Þór, sagnfrœðingur: Reykjavík verður útgerðarbær - Þilskipaútgerð við Faxaflóa - 2. grein Y Tm það verður vart deilt, að á lokaskeiði 19. aldar og fyrsta ártug hinnar XJ 20., var Reykjavík mesti skútuútgerðarbœr landsins, eflitið er til fjölda skipa. Tvennt vekur eitikum athygli þegar hugað er að sögu þilskipaútgerðar í Reykjavík. í fyrsta lagi hve stutt hún stóð, aðeins u.þ.b. hálfa öld, og miklum mun skemur en þilskipaútgerð á Vesturlandi, Vestfjörðum og við Eyjafjörð. Þá voru þilskip í Reykjavtk tiltölulega fá fyrir 1890 og árið 1895 gengu þaðan t.d. helmingi fœrri skip en frá ísafirði. Á nœstu árum fjölgaði þilskipum hins vegar ört t Reykjavík og um aldamótin 1900 voru þilskip hvergi fleiri á landinu en þar. í öðru lagi er það einkar athyglis- vert, að einn maður lifði og starfaði alla skútuöldina í Reykjavík og var all- an tímann umsvifamesti útgerðarmað- ur þilskipa í bænum. Þessi maður var Geir Zoéga útgerðarmaður og kaup- maður. Saga þilskipaútgerðar í Reykjavík er því að verulegu leyti saga hans og mun ekki ofmælt, aö fáir menn hafi átt jafn ríkan þátt í uppbyggingu atvinnulífs í Reykjavík á sinni tíð sem Geir. Gils Guðmundsson, sem manna ýtarlegast hefur kannað æviferil Geirs, telur að rekja megi áhuga hans á þilskipaútgerö Kútter Geir var glcesilegasta skip Geirs Zoéga. ÆGIR 33

x

Ægir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.