Ægir - 01.09.1999, Qupperneq 7
SAMLEIÐ MEÐ ÍSLENSKUM SJÁVARÚTVEGI
Fiskifélagsfólk og starfsmenn Athygli í básnum á sjávar-
útvegssýningunni. Frá vinstri: Atli Rúnar Halldórsson,
Athygli, Þorsteinn G. Gunnarsson, Athygli, fóhann Ólafiir
Halldórsson, ritstjóri Ægis, Guöbergur Rúnarsson, Fiskifélagi
fslands og Elínbjörg Magnúsdóttir, stjómarmaður í FÍ.
Fjölsóttur bás Athygli
og Fiskifélags íslands
Fiskifélag íslands og kynningarfyrirtækið Athygli ehf., sem er
samstarfsaðili Fiskifélags ísiands í útgáfumálum, deildu með sér
bás á Sjávarútvegssýningunni í Kópavogi og kynntu starf sitt.
Aukablað Ægis um sýninguna rann út eins og heitar lummur og
gestum var kynnt hin viðamikla útgáfa Fiskifélagsútgáfunnar,
þ.e. á Ægi, Sjómannaalmanakinu og Kvótabókinni, sem og starf
Fiskifélags íslands.
Á meðan á sýningunni stóð rak Athygli ehf. litla netfréttstofu
og voru fréttir af sýningunni skrifaðar í básnum og vistaðar beint
inn á heimasíðuna www.athygli.is. Þetta framtak vakti sannast
sagna athygli á sýningunni og var ekki óalgengt að rekast á
fréttasíðuna uppi á nettengdum tölvum í básum sýnenda.
Heldur dregur
úr hagnaði í sjávarútveginum
Fiins og sjá má á saniantcklinni hér að neðan cr gcngi hlutafclaga í
sjávarútvegi, sein skráð eru á Verðbréfaþingi ísiands, nokkuð misjafnt
á fyrri hiuta ársins. I hcild sinni virðist hagnaður á árinu ætla að verða
nokkru minni en í fyrra og er augljóst að þar spilar minnkandi vciði
uppsjávarfisks stærsta hlutverkið.
6 niánaða tippiriör 1999 1998
Grandi hf. 361 324
HB 295 253
Marel 225 -77
Skagstrendingur 130 73
Sæplast 21 7
Þorhjörn 188 111
Þormóður rannni - Sæherg 183 127
Hampiðjan 87 102
Hraðfrystihús Eskifjarðar 143 275
Hraðfrystistöð Þórshafnar -13
Islenskar sjávarafurðir 39 -209
Sandierji 200 506
SH -154 57
SÍF 51 441
Síldarvinuslan 83 209
SR Mjöl -60 155
Tangi 83 85
ÚA 180 192
Seiðatalningin jákvæð
Hafrannsóknarstofnunin hefur
birt fyrstu niðurtöður úr seiðataln-
ingu í leiðangri umhverfis landið
sfðsumars. Niðurstöðurnar taka til
þorsks, ýsu og loðnu og eru afar já-
kvæðar. Vísitala þorks var sú Iang
hæsta frá því seiðarannsóknir hófust
árið 1970 og seiðavísitala ýsu var sú
önnur hæsta sfðan mælingar hófust.
Ýsuseiðin voru nokkuð undir með-
allagi.
Seiðavísitala loðnu var há eða sú
sjötta hæsta frá upphafi. Stærð
loðnuseiðanna var talsvert yfir lang-
tímameðaltali.
ÆGIR 7