Ægir - 01.09.1999, Side 22
Kjartan B. Sigurðsson, sjómaður í Þorlákshöfn:
Hannaði vinnuhest
í beituskurðinn
-afkastar á við sjö vana beituskurðarmenn
lþjóðleg sjávaríítvegssýning er
ekki aðeins vettvangnr hinna
stóru í sjávarútveginum heldur eiga
þeir smcerri í greininni líka ntikla
möguleika ígegnum sýningu afþessu
tagi. Það sannaðist hjá Kjartani B.
Sigurðssyni, sjómanni í Þorlákshöfn,
sem undanfarin ár hefur velt vöng-
um yfir hugmynd að beituskurðarvél
sem hann svo hrinti í framkvœmd í
vetur.
Kjartan hefur verið á sjó yfir vetr-
artímann og gjarnan gripið í beitn-
ingu og þekkir því vel til þess hvernig
þarf að standa að skurði á beitu fyrir
línuveiðar. Vegna þess hversu erfitt
starf það er að skera beitu, og hve
erfitt það reynist línumönnum að fá
góða beituskurðarmenn, fór Kjartan
að þróa vélbúnað í skurðinn og sýndi
á íslensku sjávarútvegssýningunni
vél sem nú þegar er komin í notkun
hjá tveimur aðilum hér á landi.
Skemmst er frá því að segja að vélin
afkastar pönnu af beitu á mínútu og
getur því auðveldlega leyst úr því
vandamáli fyrir útgerðirnar.
„Ég kom inn á sjávarútvegssýning-
una í Kópavogi með aðeins tveggja
daga fyrirvara þannig að ég hafði lít-
inn tíma til að búa mig undir þessa
kynningu. Engu að síður liggja nú
fyrir hjá mér fyrirspurnir frá um 10
aðilum og það er langt umfram mín-
ar vonir fyrir sýninguna. Þetta þýðir
að ég fer núna á fulla ferð að fram-
leiða beituskurðarvélar en auk sam-
banda við viðskiptavini komst ég
einnig í samband við aðila sem eru
Kjartan B. Sigurðsson við beituskurðarvél-
ina. Eins og sjá má fer lítið fyrir vélinni,
enda er rýmið í beitningaskúrunum af
skornum skammti og nauðsynlegt að
tœkjabúnaðurinn sé fyrirferðarlítill.
að bjóða mér ýmsa hluti í vélina á
hagstæðara verði en mér hefur boðist
hingað til," segir Kjartan í samtali við
Ægi.
Afköstin mikil
Beituskurðarvél Kjartans er ætlað að
skera síld og makríl í beitu fyrir
handbeitningu. í henni er búnaður
sem klífur beituna fyrst og sker sam-
tímis en einnig býður Kjartan upp á
vél án kljúfara og þá hentar vélin fyr-
ir smokkfisk og fyrir beitningartrekt.
Hver biti er 25 mm þykkur, sé skorið
með kljúfara, en 20 mm ef skorið er
án kljúfara.
„Staðreyndin er sú," segir Kjartan,
„að það er erfitt að finna góða menn
í beituskurð nú til dags. Sömuleiðis
er vélin mun fljótari að skera en vön-
ustu menn. Ég hef tekið tímann á
vönum mönnum og sýnist að þeir
komist niður í 7 mínútur í skurð á
hverri pönnu á meðan vélin afkastar
pönnu á mínútu. Afköstin eru því á
við sjö vana menn," segir Kjartan en
miðað er við að hráefnið sé álíka
frosið þegar það er matað í vélina
eins og það er fyrir handskurð. Engu
að síður ræður vélin við að skera full-
frosið hráefni, enda drifin áfram af
kraftmiklum rafmótor.
Fyrsta beituskurðarvélin sem Kjart-
an smíðaði var í notkun í Þorláks-
höfn síðastliðinn vetur og nutu 15
smábátasjómenn góðs af henni.
Undir vor seldi Kjartan aðra vél til
Grindavíkur og nú stefnir í að vélar
fari vítt og breitt um landið. "Ég held
líka að vélarnar kynni sig vel sjálfar
þegar menn sjá þær uppsettar í beitn-
ingaskúrunum enda sjá menn erfiðið
við beituskurðinn fokið út í veður og
vind," segir Kjartan B. Sigurðsson.
Horft ofan í vélin. Fiskinum er stungið
frosnum niður í trektina og út kemur á
augabragði tilbúin beita.
22 ÆGIR
jóhann Ólafiir Hallciórsson