Ægir

Árgangur

Ægir - 01.09.1999, Blaðsíða 39

Ægir - 01.09.1999, Blaðsíða 39
SAMLEIÐ MEÐ ÍSLENSKUM SJÁVARÚTVEGI Jochum Martli Ulrichsson (t.h.) er hér ásamt Hartmut A. Haucke, einum af forstjórum Baader verksmiðjanna í Liibeck í Þýskalandi, á afmcelishátíð Baader ísland elif. Þýsku verksmiðjurnar eru helmingseigendur Baader fsland. stæðinu hafi ekki aðeins sparað mann- skap og aukið framleiðslugetuna held- ur einnig laðað að verkefni fyrir önnur fyrirtæki. „Raunar er það svo að Baader fsland hjálpar mörgum nýjum aðilum í iðn- aði að koma undir sig fótunum með því að framleiða fyrir þá íhluti í vélar. Og við vinnum einnig fyrir stóra aðila í greininni, til að mynda íhluti fyrir Marel og marga aðra aðila sem einnig eru í framleiðslu á búnaði fyrir sjávar- útveg," segir Jochum. Alls telur Jochum um 400 viðskipta- menn Baader á íslandi og gefur það nokkra mynd af útbreiðslu Baader vél- anna. „Ég er ekki í nokkrum vafa um að Baader vélarnar hafa hjálpað til við framþróun fiskiðnaðar. Vélvæðingin hefur gert þróun í fiskiðnaði mögulega og staðreyndin er sú að það er vélvæð- ingunni að þakka að launin hafa farið hækkandi í fiskiðnaði. Þróunin hefur því verið jákvæð," segir Jochum Ul- rich Marth, framkvæmdastjóri Baader ísland ehf. A þessu árí kom á markað ný gerð af sambyggðri flökunar og roðflettivél frá Baader. Stærðar sinnar vegna er vélin álnigaverð fyrir útgerð frystiskipa. Jochum Marth Ulrichsson, framkvœmdastjóri Baader Island ehf: Fylgjum sveiflunum í fiskvinnslunni /'ochum Marth Ulrichsson, fram- kvœmdastjóri Baader ísland ehf., segir fyrirtœkið blómlegt á afntœlis- árí enda gangi alltafvel þegar vel ári í sjávarútveginum, eins og nú. Alls eru 24 starfsmenn hjá Baader ís- landi elif. í dag en flestir voru starfs- menn fyrirtœkisins upp úr 1970 þeg- ar íslensk fiskvinnsla var að rétta við eftir mikla lœgð á sjöunda áratugn- um. Á þessu ári kom á markaðinn ný gerð af sambyggðri flökunar- og roð- flettivél, Baader IS 185, sem er ekki hvað síst áhugaverð fyrir vinnsluskip þar sem hún er jafn stór flökunarvél sem er í mörgum skipanna en leysir af hólmi bæði flökunarvél og roðflettivél um borð. Vélin sparar auk þess einn mann í vinnslunni um borð. Sambyggða flökunar- og roðfletti- vélin er ekki eina nýjungin frá Baader á þessu ári því Baader ísland ehf. hefur einnig sett á markað nýjan hausara fyrir saltviskvinnslu og frá Baader verksmiðjunum í Þýskaiandi er að koma á markað nýr hausari. Baader ísland ehf. rekur mjög full- komið renniverkstæði í Kópavogi, að líkindum eitt fullkomnasta renniverk- stæði landsins. Jochum segir að tölvu- væddir rennibekkir og fræsarar á verk- mm 39

x

Ægir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.