Ægir - 01.09.1999, Síða 40
Staðsetning Kuldabola í Þorlákshöfii er
góð, enda stutt að fara til stœrstu staða á
suðvesturhorninu.
löngu þar til við verðum komnir með
góða nýtingu á húsið. Áhuginn strax á
fyrstu vikum staðfestir það. Við reikn-
um með að helsta markaðssvæðið á
landi verði Suðurland, Suðvesturhorn-
ið og Vesturland en vissulega geta við-
skiptavinir víðs vegar að af landinu
séð sér hag í að notfæra sér geymslu-
þjónustu hjá okkur," segir Gestur en
neitar því að ísfélag Þorlákshafnar sé
að leggja í samkeppni við frysti-
geymslur skipafélaganna með rekstri
Kuldabola.
„Nei við metum það svo að mark-
aðurinn sé stækkandi og full þörf á
viðbótargeymslurými. Við erum því
síður en svo í samkeppni við skipafé-
lögin og vonandi hafa þau þörf fyrir
að notfæra sér okkar þjónustu," segir
Gestur.
Ætlunin er að innan tíðar verði
starfsemi Fiskmarkaðarins í Þorláks-
höfn flutt í húsnæði Kuldabola en ís-
félag Þorlákshafnar á stóran hlut í
markaðinum.
Bygging Kuldabola var í höndum
ístaks en fjöldamargir undirverktakar
komu að verkinu, s.s. Kælismiðjan
Frost, sem annaðist kæli- og frystikerfi,
Iðnval ehf., sem sá um ráðgjöf, eftirlit
og forhönnun kæli- og frystikerfis,
Tölvumyndir, sem sá um birgðastjórn-
unarkerfi og Arkitektastofan ehf., sem
annaðist hönnun hússins.
Kuldaboli í gagnið
í Þorlákshöfn
/'sfélag Þorlákshafnar hefur tekið í
notkun 2000 fermetra frysti- og
kœligeymslu sem œtlað er að þjón-
usta matvœlafyrirtœki. Forsvars-
menn Isfélagsins segja fyrst og fremst
horft til þjónustu við sjávarútveginn
íþessu samhandi og verður höfðað til
innlendra sjávarátvegsfyrirtœkja,
sem og xítgerða erlendra vinnsluskipa
sem gera lít á mið í nágrenni við
landið. í húsinu er 20000 rúmmetra
frystisými og rúm fyrir 800
kaslibretti.
„Jú, það er rétt að markaðssvæði
okkar er raunar bæði landið og mið-
in," segir Gestur Ámundason, fram-
kvæmdastjóri Kuldabola í Þorláks-
höfn, en það nafn hefur nýja frysti- og
kæligeymslan hlotið.
„Okkar markmið er að ná til okkar
nýjum aðilum sem þurfa á þessari
þjónustu að halda. Við töldum okkur
skynja þörf á viðbótarrými í frysti- og
kæligeymslu og miðað við viðtökurnar
sem við höfum fengið þá var þörfin
greinilega fyrir hendi. í frystivörunni
er bæði um að ræða afurðir og ekki
síður hráefni sem vinnslurnar þurfa að
geyma um tíma. í kælivörunni er að
stórum hluta um að ræða saltfisk sem
fer með beinum áætlunarsiglingum
héðan frá Þorlákshöfn Evrópu,
sérstaklega til Spánar og Portúgals,"
segir Gestur.
Leitað viðskipta
við erlendar útgerðir
Gestur segir að nú sé þegar hafið
markaðsstarf sem beinist sérstaklega
að útgerðum erlendra vinnsluskipa á
hafsvæðinu í kringum ísland. Vegna
beinna siglinga frá Þorlákshöfn til Evr-
ópu geti verið mikil hagkvæmni fólgin
í því fyrir útgerðirnar að landa í Þor-
lákshöfn og njóta þjónustu Kuldabola
þar til afurðirnar fara um borð í flutn-
ingaskip.
„Við höfum trú á að ekki líði á
Nýja frysti- og kœligeymslan Kuldaboli er mikið mannvirki og innandyra er að finna
fullkomnasta biinað til stýringar í nútíma birgðastöð.
40 MGin -------------------------------------------------------