Ægir - 01.09.1999, Page 41
SAMLEIÐ MEÐ ÍSLENSKUM SJÁVARÚTVEOI
Börkur NK-122.
Börkur NK kominn
úr breytingum
- héltþegar til kolmunnaveiða
/'slenskar útgeröir eru nú í óða önn
að gera skip sín þannig úr garði að
bœtur hœfi veiðum á kolmunna í
landhelginni. Börkur NK-122 á
Neskaupstað er nýkominn til
heimahafnar eftir breytingar í
Englandi. Breytingarnar kostuðu
nálœgt 400 milljónum króna.
í Berki var komið fyrir tæplega 7400
hestafla vél af gerðinni Caterpillar
3616 frá Heklu hf. Við vélina var sett-
ur nýr gír og 3,6 metra skrúfa. Ný
ljósavél var sett í skipið en í heild var
komið fyrir nýju vélarrúmi á Berki.
Skipið var lengt og breikkað aftan til
jafnhliða sem vélarrúmi var komið fyr-
ir og lengdist Börkur við breytingarnar
um 80 sentimetra.
Sett voru í skipið ný Rapp togspil
frá Gróttu hf. og hefur skipið togkraft
Breytt
fiskiskip
upp á um 90 tonn. Þá var nýrri bóg-
skrúfu komið fyrir, nýrri hliðarskrúfu
og Ulstein stýri og stýrisvél. Skipið var
loks málað með Jotun skipamálningu
frá Málningu hf.
Eftir breytingarnar er Börkur orðinn
annað öflugasta kolmunnaveiðiskip
flotans en fyrr í sumar kom Hólma-
borgin úr hliðstæðum breytingum.
Börkur hélt þegar til kolmunnaveiða,
enda hafð skipið tafist nokkuð hjá
skipasmíðastöðinni í Englandi miðað
við upphaflegar áætlanir.
REVTINGUR
Fullkominn
fj arskiptabúnaður
Danska fyrirtækið Thrane &
Thrane hefur sett á markað nýtt
fjölstefnuloftnet, TT-3005 M Capsat
Maritime Antenna, sem kemur í
stað hins eldra Inmarsat-C loftnets
frá T&T.
Þetta loftnet er mjög lítið, 178 x
122 mm en að sögn framleiðenda
sérlega öflugt. Flutningsgeta þess er
32 kílóbæti, sem gerir kleift að
senda alls kyns myndir um gervi-
hnött.
Loftnetið tekur Inmarsat-C og
GPS sendingar og auðvelt er að
tengja TT-3020C GMDSS Capsat og
3TT-022D sendi/móttakara við það.
Fjarlægð frá sendi/móttakara til loft-
nets má vera allt að 100 m.
T&T hefur einnig hafið fram-
leiðslu á TT-3000CM Capsat
GMDSS Dual Mode System, sem
samsvarar bæði Inmarsat-C
GMDSS/Fishery og Maritime Mini-
M. Framleiðandi segir kerfið bæði
uppfylla kröfur til gervihnattasam-
bands fyrir A3 svæði og þarfir fiski-
skipa.
Kerfið tekur einnig til símtala,
fax- og tölvusendinga. Sé Inmarsat-
C neyðarskeyti sent er samtímis
hægt að hringja í fyrirfram skilgreint
símanúmer, t.d. neyðarnúmer, og
tryggja þannig að björgunaraðgerðir
hefjist eins fljótt og mögulegt er.
(World Fishing)
ÆGIR 41