Ægir - 01.09.1999, Page 42
Grettir SH104
Skeflfiskbáturinn Grettir SH104 koni frá Póllandi til heima-
hafnar í Stykkishólmi sunnudaginn 8. ágúst síðastliðinn eftir
miklar breytingar. Skrokkur skipsins er nýr og mikið breyttur
frá upphaflegri hönnun. Þannig breikkaði skipið úr 6,71m í 8,10
metra og styttist úr 30,63 í 28,95 metra. Einungis vélbúnaður
ásamt skrúfubúnaði og spili voru hirt úrgamla Gretti. Skipið er
sem nýtt og einungis skráninganúmerið gefur til kynna að skipið sé
gamalt. Grettir er byggður sem lítill skuttogari til veiða með skel-
fiskplóg og troll. Endursmíðin fór fram hjá Nauta í Gdynia í
Póllandi og kostað um 80 milljónir króna. Verkfrœðistofan Fengur
sá um hönnun og eftirlit með breytingum.
Eigandi skipsins er Snœfell hf. í Stykkishólmi og framkvœmdastjóri
er Gunnlaugur Ámason. Skipstjóri Grettis SH er Páll
Guðmundsson, stýrimaður Bárður Eyþórsson og vélstjóri er Ægir
Ólafsson.
Breytt
fiskiskip
Guðbergur
Rúnarsson
verkfrœðmgur
hjá Fiskifélagi íslands
skrifar
Tæknideild Fiskifélags íslands
42 Mm