Ægir

Ukioqatigiit

Ægir - 01.12.1999, Qupperneq 5

Ægir - 01.12.1999, Qupperneq 5
Pétur Bjarnason, framkvœmdastjóri Fiskifélags íslands: SAMLEIÐ MEÐ ÍSLENSKUM SJÁVARÚTVEGI Heimur batnandi fer Umræða um umhverfismál ein- kennist oft af því hve hart er gengið að náttúrunni á ýmsa lund og hve skammt sé í að athafnir mannanna kollsteypi vistkerfinu og grundvelli lífsins. Heimsendir er sem sagt skammt undan. Um þetta hafa verið skrifaðar lærðar bækur. Á síðasta ári kom í Danmörku út bók, sem ekki hefur látið mikið yfir sér. Bókin heitir „Verdens Sanne Til- stand" eða „Hið sanna ástand heims- ins" og er eftir Björn Lomberg, lektor við Háskólann í Árósum. í bókinni kveður við nokkuð annan tón en í bókum heimsendaspámanna. Höfund- urinn fer með skipulögðum og sann- færandi hætti yfir þau vandamál sem valdið hafa áhyggjum um framtíð og velferð mannkyns varðandi umhverf- ismál. Niðurstaða höfundar er önnur en heimsendaspámannanna. Hann kemst að því að þrátt, fyrir allt sé heimurinn betri staður að búa á nú en nokkurn tíma fyrr. Við getum vænst lengri lífdaga og betri heilsu en fyrri kynslóðir. Loft- og lagarmengun hefur minnkað, óþarfi er að hafa áhyggjur af orkuskorti og að ekkert er líklegra en að við getum um ókomna framtíð lif- að í sátt og samlyndi hér á jörð án þess að líða skort af nokkru tagi. Áhyggjur okkar stafa fyrst og fremst af fordómum, sem umfjöllun um um- hverfismál - m.a. í fjölmiðlum - hefur skapað og af ónógri greiningu vand- ans. Lokaorð bókarinnar eru: „Börn sem Leiðari fœðast nú - bœði í þróuðu og íþróunar- löndunum - munu lifa lengur og vera heilbrigðari, þau munu fá meira að borða, betri menntun, njóta betri lífs- kjara, fleiri tómstunda og eiga langtum fleiri möguleika - án þess að umhverfi jarðar bíði skaða af. Og þetta er fagur heimur. Njóhim hans." „Hið sanna ástand heimsins" er bók sem vissulega ber með sér að höfund- urinn er fuliur bjartsýni um framtíð jarðarinnar. Og boðskapur bókarinnar hljómar á skjön við flest það sem við heyrum um umhverfismál. Það ber þó að varast að afgreiða bókina með létt- úð. Höfundurinn leitar víða fanga og styður niðurstöður sínar með mörgum tilvísunum. Niðurstöður höfundar eru afrakstur vinnu og rannsókna, sem taka ber alvarlega, og þær gefa okkur tækifæri til að sjá veröldina með raun- særri og bjartsýnni augum en áður. Höfundur horfir ekki fram hjá vanda- málunum heldur setur þau í eðlilegt samhengi við möguleika okkar til að leysa þau í stað þess að eingöngu að óttast afleiðingarnar. Það er ánægjuefni um áramót að geta komið til lesenda rökstuddum boðskap um að sá heimur sem við lif- um í er ekki á vonarvöl heldur fer sí- fellt batnandi. Ægir óskar lesendum sínum gleði- legra jóla og farsæls komandi árs. Mm 5
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Ægir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.