Ægir - 01.12.1999, Qupperneq 23
SAMLEIÐ MEÐ ÍSLENSKUM SJÁVARÚTVEGI
ÍS og þær miklu breytingar sem er ver-
ið að gera á Sölumiðstöð hraðfrystihús-
anna og koma til framkvæmda um ára-
mótin.
Þetta eru
jákvæðir
hlutir sem ég
tel að eigi
eftir að
styrkja tengsl
framleiðend-
anna við
markaðinn,
með beinum
tengslum
þeirra við sölufyriræki SH erlendis."
„Nú vil ég ekki gerast spámað-
ur, en ég tel það að minnsta kosti alveg
liggja ljóst fyrir að engum endapunkti
er náð í sameiningu sjávarútvegsfyrir-
tækja. Fjarri því. Þá verða fyrirtækin í
vaxandi mæli á næstu árum að taka til-
lit til umhverfismála, upplýsingakröfur
neytenda um þær vörur sem þeir
kaupa og neyta fara sífellt vaxandi,
þannig að fyrirtækin munu í auknu
mæli leggja áherslu á umhverfismál."
SeiðaVisitalan
Vekur bjartsýni
- segirAmar Sigurmundsson,
formaður SamtakaJiskoinnslustöðiia
„Það sem ber hæst að mínu áliti á
þessu ári í íslenskum sjávarútvegi eru
niðurstöður mælinga Hafrannsókna-
stofnunar, sem staðfesta að seiðavísi-
tala þorsks hér við land er sú lang-
hæsta frá því mælingar hófust fyrir
tæpum þremur áratugum. Þessi
ánægjulegu tiðindi gefa tilefni til bjart-
sýni á aukinn þorskafla á íslandsmið-
um á næstu árum.
Samrunaferill fyrirtækja heldur
áfram og fleiri og stærri sjávarútvegs-
fyrirtæki eru skráð á Verðbréfaþingi ís-
lands. Stjórnendur fyrirtækja í sjávar-
útvegi eru sífellt að leita nýrra leiða í
hagræðingu og aukin samkeppni hefur
kallað fram breytingar á vinnslu- og
launakerfum í fiskvinnslu.
Eins og undanfarin ár hafa skipst á
skyn og skúrir í rekstri fyrirtækjanna.
Vaxandi þorskafli ásamt háu afurða-
verði hefur hjálpað mikið í frystingu
og söltun. Aflasamdráttur í rækjuveið-
um setur afkomu rækjuvinnslunnar í
mikinn vanda. Eftir nokkurra ára góð-
æri og mikla uppbyggingu í mjöl- og
lýsisvinnslu
hefur slegið í
bakseglið
vegna verð-
þróunar á
heimsmark-
aði. Þá hafa
léleg afla-
brögð í
loðnuveið-
um á haust-
vertíðinni
aukið á vand-
ann.
fslenskur sjávarútvegur er löngu
orðinn markaðsvæddur og horfið frá
miðstýringu fyrri ára. Starfsemi Kvóta-
þings sem komið var á fót af opinber-
um aðilum er spor aftur á bak og
hindrar eðlileg viðskipti fyrirtækja og
tuflar með þeim hætti hráefnisöflun
fiskvinnslunnar.
Þá er vissilega ástæða til þess að hafa
þungar áhyggjur af þróun innlendra
efnahagsmála. Mikill viðskiptahalli og
tvöfalt meiri verðbólga en í okkar
helstu viðskiptalöndum ógnar stöðu
þjóðarbúsins. Þenslan í þjóðfélaginu,
með tilheyrandi kostnaðarhækkunum,
hefur neikvæð á samkeppnisstöðu út-
flutningsgreina og þann stöðugleika
sem treyst hefur afkomu atvinnurekstr-
ar og verið grundvöllur bættra lífskjara
hér á landi á síðustu árum."
„Margir óvissuþættir ráða miklu
um gengi sjávarútvegsins og þar verður
næsta ár engin undantekning. 5%
verðbólga og hækkað raungengi krón-
unnar ógna samkeppnishæfni útflutn-
ings- og samkeppnisgreina. Við þessar
Sameiningarhrman hélt áfram á árinu
1999 og sást vel á sjávarútvegssýning-
unni, t.d. hér í sameiginlegum bás Vaka
og DNG, sem formlega sameinuðust á síð-
asta hluta ársins.
aðstæður er gengið til nýrra kjara-
samninga. Óraunhæfar kröfur og
hörð átök á vinnumarkaði geta auð-
veldlega eyðilagt þann góða árangur
sem náðst hefur.
Þenslan í þjóðfélaginu, einkum á
höfuðborgarsvæðinu hefur leitt til
umtalsverðar byggðaröskunar. Sjávar-
plássin hafa ekki farið varhluta af
þessari þróun og hefur þetta gerst á
sama tíma og mörg sjávarútvegsfyrir-
tæki hafa gengið í gegnum miklar
breytingar."
„Fyrirtækin munu eins og á þess-
um áratug leita allra leiða til aukinnar
hagræðingar sem mun leiða til frekari
sameininga. Líklegt verður að telja að
þessi þróun haldi áfram, sem mun
leiða til þess að annars vegar verði til
staðar nokkur stór fyrirtæki í veiðum
og vinnslu og hinsvegar mikill fjöldi
smærri fyrirtækja. - Ný öld mun auka
vægi hvers konar rannsókna- og þró-
unarvinnu í sjávarútvegi. Sama gildir
um umhverfismál sem skipta sífellt
meira máli í rekstri sjávarútvegsfyrir-
tækja og við sölu afurðanna."
Ægisáskrift!
Gott áramótaheit!
*
Askriftasími:
551 0500
Einar Valur Kristjánsson.
Arnar Sigurmundsson
ÆGJIR 23