Ægir - 01.12.1999, Side 27
SAMLEIÐ MEÐ ÍSLENSKUM SJÁVARÚTVEGl
skila góðri ársafkomu og um fyrirtækið
hafði einn viðmælenda blaðsins þetta
að segja: „Þrátt fyrir háværar raddir um
að einingin „fjölskyldufyrirtæki" sé að
líða undir lok er Þorbjörn rakið dæmi
um að svo sé ekki. Þeir veðjuðu á
frystiskip og saltfisk og það hefur geng-
ið eftir. Hæfni stjórnenda félagsins er
fyrir hendi og hafa þeir sannað það á
árinu og tel ég að þeir eigi eftir að
sanna það frekar á komandi tímum."
Grandi hf.
-eitt best rekna
fyrirtæki landsins
Flestir eru sammála um að ógjörningur
sé að taka út fimm bestu sjávarútvegs-
fyrirtækin 1999 án þess að Grandi sé
þar á meðal. Afkoman sé jafnan góð en
það sem helst sé fyrirtækinu fjötur um
fót séu takmarkaðir möguleikar til frek-
ari hagræðingar. Þó sé full ástæða til að
taka eftir innkomu Granda í Hrað-
Fyrirbœrið
„ fjölskyldufyrirtœki"
ekki liðið undir lok.
frystihúsið - Gunnvöru hf., sem áður
er getið um í umfjöllun um Þormóð
ramma - Sæberg hf. Þrátt fyrir að allir
séu sammála um að Grandi hf. muni
skila góðri ársafkomu hlýtur versnandi
útlit í karfaveiðum að hafa nokkur
áhrif á fyrirtækið þar sem það er sterkt
á því sviði.
Síðari hluti árs mikilvægur
fyrir Samherja
Milliuppgjör Samherja fyrir fyrstu sex
mánuði ársins olli greinilegum von-
brigðum á markaðnum og því má segja
að nokkurrar eftirvæntingar gæti varð-
andi síðari hluta ársins. Samherji hefur
á árinu haldið áfram að styrkja stöðu
sína gagnvart öðrum innlendum fyrir-
tækjum, t.d. tengsl við Síldarvinnsl-
una, KEA/Snæfell og Skagstrending hf.
en þá sérstöðu hefur Samherji í hópi
sjávarútvegsfyrirtækja að vera komið
að mörgkum leyfilegrar hlutdeildar í
kvóta í einstökum tegundum. Þetta
gerir sameiningarmöguleika takmark-
aða. Á hinn bóginn benda margir á að
í Samherja hf. sjáist ríkur vilji til starfs
á alþjóðlegum vettvangi enda sé „Sam-
herjamönnum sama hvaðan þeir rói -
ef þeir bara rói!," eins og einn við-
mælenda Ægis komst að orð.
Utvegur1998
er kominn út
í Útvegi má finna tölulegar upplýsingar um flest
þaö sem viökemur sjávarútvegi, s.s:
• fjármunamyndun
• fiskafla og aflaverðmæti
• hagnýtingu fiskafla
• útflutning sjávarafurða
• afla erlendra skipa sem unninn er á íslandi
• afla erlendra ríkja sem veiða við ísland
• heimsafla
Útvegur er ómissandi uppflettirit fyrir þá sem leita
tölulegra upplýsinga um sjávarútveg.
Efnið er fáanlegt bæði á bók og geisladiski.
Sölustaður: Hagstofa íslands, Skuggasundi 3,101 Reykjavík. Áskriftar- og pöntunarsími: 560 9866.
Ilagstofa íslands
Skuggasundi 3
101, Reykjavik
Sími 560 9800
www.hagstofa.is
ÁCÍR 27