Ægir

Árgangur

Ægir - 01.12.1999, Blaðsíða 28

Ægir - 01.12.1999, Blaðsíða 28
Jón Þ. Þór, sagnfrœðingur: Öld öfganna - hugleiðingar um þróun sjávarútvegs á 20. öld Fjöldi þilskipa á ytri höfninni í Reykjavík. Ljósmyndir eru skemmtilegar heimildir. Þœr Ijúga sjaidan en lýsa ástandinu eins ogþað er á til- teknum stað á því augnabliki sem myndin er tekin. Eigi maður þess kost að bera saman myndir, sem teknar eru á sama staðnum með iöngu millibili, fœst oft skemmtilegur sam- anburður, sem segir mikla sögu. Fyrir skömmu sá ég nýlega mynd, loftmynd, af Reykjavíkurhöfn (gömlu höfninni). Hún var tekin síðastliðið sumar eða haust og við blöstu glæsileg fiskiskip, skuttogarar, flestir fullkomin frystiskip, sem geta verið að veiðum vikum og jafnvel mánuðum saman, nánast hvar sem fisk er að hafa. Bún- aður þessara skipa er allur hinn full- komnasti og mér er tjáð af kunnugum, að vistarverur, viðgjörningur og allur aðbúnaður skipverja minni um sumt meira á hótel en það sem vænta megi um borð í fiskiskipi. Skammt frá tog- urunum blöstu við á myndinni stór nótaveiðiskip og þar skammt undan fjölmargir yfirbyggðir handfærabátar, flestir úr plasti, undraefni 20. aldar- innar. Var þetta íslenski fiskveiðiflot- inn árið 1999 í hnotskurn? A meðan ég virti fyrir mér þessa mynd, skaut skyndilega upp í huga mér annarri ljósmynd af Reykjavíkur- höfn. Hún er miklu eldri, tekin nálægt síðustu aldamótum, og þó líklega rétt fyrir aldamótin, kannski árið 1899. Þessi mynd hefur víða birst í bókum og tímaritum. Á henni gefur að líta fjölda þilskipa á ytri höfninni og við 28 MÆ. ------------------------- litlu steinbryggjurnar og í fjörunni má sjá nokkra árabáta, jullur og feræringa, ef til vill örfáa sexæringa. Flest bendir til þess, að þessi mynd hafi verið tekin að vetri til, ef til vill síðla vetrar. Það skiptir þó ekki meginmáli, myndin bregður upp svipleiftri af fiskveiðiflota íslendinga um síðustu aldamót, fyrir rétt um það bil eitt hundrað árum síð- an. Samanburður á þessum tveimur ljósmyndum sýnir glöggt hinar miklu breytingar, sem orðið hafa í sjósókn og sjávarútvegi íslendinga á næstliðn- um eitt hundrað árum. Á eldri mynd- inni voru einungis seglskip og árabát- ar. Hvert einasta far var smíðað úr timbri og skipverjar stunduðu veiðar með líkum hætti og forfeður þeirra höfðu gert frá landnámsöld. Handfær- ið var helsta veiðarfæri þeirra og stöku árabátamenn lögðu lóðir. Hafnar- mannvirki voru engin í Reykjavík að heitið gæti er myndin var tekin og þá var fiskveiðilögsaga fslendinga aðeins þrjár sjómílur. Gæsla hennar var í molum og á ári hverju urðu íslenskir sjómenn að þola yfirgang og eyðilegg- ingu af hendi útlendra fiskimanna, sem hingað sóttu á stórum, gufuknún- um skipum. Yngri myndin birtir okkur allt ann- an veruleika. Skipin á henni, stór og smá, eru meðal hinna fullkomnustu sinnar tegundar í víðri veröld. í Reykjavík eru þeim búin ágæt hafnar-
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Ægir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.