Ægir - 01.12.1999, Side 32
Framkvœmdir við fyrsta áfanga í stœkkun Hafnarjjarðarhafnar langt komnar:
Veruleg breyting
á hafnarþjónustu Hafnfirðinga
-kostnaður við fyrsta áfanga um einn milljarður króna
Mikil breyting er nú að verða á
hafnaraðstöðu í Hafnarfirði.
Byggður hefur veríð nýr 400 m langur
öldubrjótur um 800 m vestan Suður-
garðs, 200 m langur hafnarbakki með
8 m dýpi og um 10 til 15 hektara
landfylling, þar sem fyrstu þjónustu-
fyrirtœkin eru að kotna sér fyrir.
Már Sveinbjörnsson, framkvæmda-
stjóri hafnarinnar segir þetta verulegar
breytingar, sem auki til muna mögu-
leika á þjónustu við skip og báta í
Hafnarfirði. „Já, við teljum þetta mikla
viðbót, sem mun skila sér í stóraukinni
aðstöðu til þjónustu og aukinni skipa-
umferð um höfnina," segir Már í sam-
tali við Ægi.
Eins og áður segir er öldubrjóturinn
vestast á svæðinu um 400 metrar að
lengd og ver bæði gömlu og nýju hafn-
Hin stóra flotkví Vélsmiðju Orms og Víglundar varð strax þjóðþekkt þegar hún var
dregin til landsins, enda þurfti varðskipsfylgd síðasta spölinn. Síðan hefur þetta mikla
mannvirki legið við bryggju í miðbœ Hafnarfjarðar en nú er kvíin komin á sinn
framtíðarstað og verður þar við hlið minni kvíar Vélsmiðju Orms og Víglundar.
Á alls um 10 hektara svœði við nýju hapiaraðstöðuna getur Hafnarfjarðarhöfn nú boðið
fyrirtœkjum ióðir. Þegar heildarframkvœmdum verður lokið mun þetta svœði verða hátt í
23 hektarar að stœrð.
armannvirkin. í nýju höfninni hefur
verið rekið niður 200 metra langt stál-
þil og verður þekja og lýsing á nýja
bakkanum frágengin í júní á næsta ári.
Fullbúið verður svæðið 23 hektarar að
stærð og hafnarbakki um 450 metrar.
Vestast á svæðinu hefur stærri flot-
kví Vélsmiðju Orms og Víglundar verið
fest til frambúðar. Minni kvíin verður
færð að hlið hinnar síðar í vetur. Fyrir-
tækið mun í náinni framtíð byggja
upp aðstöðu í landi til starfsemi sinnar.
Við hlið VOOV rís nýtt hús verkstæði
ÓSEYJAR hf., en húsnæði þeirra við
Hvaleyrarlón varð eldi að bráð í nóv-
ember í fyrra.
„Áhugi á svæðinu er töluverður, ef
marka má fyrirspurnir og eftirspurn
32 AGJR