Ægir - 01.12.1999, Page 34
Dönsk sjómanna-
samtök blanda sér
í hjúskaparmál
S0ren Jensen, danskur sjóntaður í
Thybor0n, kynntist taílenskri
stúlku, Sukanya, og þau œtluðu að
rugla sanian reytunum, - en þá koni
babb í bátinn.
Dönsk yfirvöld synjuðu Sukanyu
um landvistarleyfi vegna þess að eigin-
maðurinn uppfyllti ekki atvinnu sinn-
ar vegna þau skilyrði laga frá 1984 að
sé makinn ekki frá Evrópubandalags-
landi eða einhverju Norðurlandanna
þarf daglegar samvistir til að að hægt
sé að skilgreina sambandið sem sam-
búð. Séu ríkisborgarar annarra landa
ekki í sambúð fá þeir ekki land-
vistarleyfi í Danmörku.
Dansk Fiskeriforening höfðaði mál
á þeim forsendum að það væri skerð-
ing mannréttinda þeirra sem langtím-
um saman væru burtu frá heimili sínu
að meina þeim að velja sér maka utan
Norðurlanda og Evrópubandalagsland-
anna. Félagið benti á að hið sama
hlyti að gilda um þingmenn á Evrópu-
þinginu, flutningabílstjóra á milli-
landaleiðum, þá sem ferðast mikið í
viðskiptaerindum, og reyndar alla sem
þurfa að vera langtímum saman frá
heimili vegna vinnu. Félagið vann
málið, og Sukanya fékk landvistarleyfi
í Danmörku.
Málið hefur fordæmisgildi, svo
framvegis geta danskir ríkisborgarar
valið sér maka af hvaða þjóðerni sem
vera skal án þess að eiga yfir höfði sér
að honum sé vísað úr landi vegna of
stopullar samveru.
(Fiskeritidende)
C G A R
V c
M £
4 R E V
N '
TRYGGINGA-
MIÐSTÖÐIN HF
AÐALSTRÆTI 6-8 • 101 REYKJAVÍK
SÍMI 515 2000 - www.tmhf.is
34 ÆGIR