Ægir - 01.12.1999, Page 59
SAMLEIÐ MEÐ ÍSLENSKUM SJÁVARÚTVEOI
Fríðrik Bergmann
SH-240
rlingur Helgason, útgerðarmaður í
Ólafsvík fékk á dögunum afhentan
70 tonna bát hjá skipasmíðastöðinni
Ósey í Hafnarfirði, sem fengið hefur
nafnið Friðrik Bergmann SH-240. Skipið
er hannað sem alhliða fiskiskip en
verður gert út á dragnótarveiðar.
Kostnaður við smíðina nam um 56
milljónum króna, þegar búnaður hefur
verið meðtalinn. Smíði skipsins hefur
ekki gengið þrautalaust fyrir sigþví
upphaflega átti að afhenda það um
síðastliðin áramót en vegna stórbruna
hjá Ósey, fyrir rúmu ári, varð seinkun á
afhendingu. Nœr fullsmíðað skip varð þá
Ný
fiskískip
eldinum að bráð ogþví varð Ósey að
stníða skipið að nýju, sem skiljanlega olli
margra mánaða seinkun á afhendingu.
Um hönnun skipsins sá Skipa og
vélatœkni ehf. í Keflavík.
Erlingur Helgason, útgerðarmaður,
verður sjálfur skipstjóri á Friðriki
Bergmann SH en stýrimaður verður Sölvi
Konráðsson og vélstjóri Garðar fónsson.
------------------------AGIR 59