Ægir

Volume

Ægir - 01.09.2000, Page 44

Ægir - 01.09.2000, Page 44
SKIPASTÓLLINN Helstu mál og stærðir Aðalmál: Mælinq: Mesta lengd (Loa) (m) 22,70 Brúttórúmlestir 127,18 Skráð lengd (m) 20,43 Brúttótonnatala 149 Lengd milli lóðlina (m) 22,00 Nettótonn 45 Breidd (mótuð) (m) 6,70 Dýpt að neóra farþega- þilfari (m). 2,40 Aðrar upplýsinqar: Dýpt að efra farþega- Djúprista 2,0 m þilfaari (m). 4,70 Reiknaóur togkraftur Dýpt að vöruflutninga- við 2x400 hestöfl 8,3 tonn þilfari (m). 3,70 Áætlaður ganghraði 12 sjómíiur Skipaskrárnúmer 2378 Rými og stærðir: Eigin þyngd (tonn) -130 Særými við 2,0m djúpristu (tonn) -145 Brennsluolíu- geymar (m3) 26,4 Ferskvatnsgeymar (m3). 11,8 Smurolia og glussi (m3) 2,8 Sjókjölfesta (m3) 15,8 að stærð, um 23 metrar að lengd og tek- ur 70 farþega í sæti. Sævar er búinn lönd- unarkrana og getur því flutt bæði gáma og bíla á vöruþilfari. Almenn lýsing Skipið er smíðað úr stáli samkvæmt regl- um og undir eftirliti Lloyds Register og flokkað í klassa 100A1. Skipið er búið þverskipsböndum með bandabili 0,5 m, framhallandi stefni, þverum skut, tveim- ur farþegaþilförum fyrir samtals 70 far- þega x sætum og aftast er opið vöruþilfar fyrir allt að 20 tonn af vörum. Undir neðra farþegaþilfari er skipinu skipt með fimm vatnsþéttum þverskips- þilum. Fremst er stafnhylki fyrir sjó, þá bógskrúfurými, olíugeymir, tveir vatns- geymar með þurrrýmum út við síður, stjórnborðs- og bakborðsolíugeymar eru í vélarúmi og aftast er rými fyrir tvö skrúfudrif. Manngengt er á tankalofti undir neðra farþegarými frá bógskrúfu- rými aftur í vélarúm. Ur neðra farþega- rými er neyðaruppgangur upp á stefni. Helstu verktakar og birgjar sem koma að smíði Sævars Stálsmiðjan hf. Crist í Gdansk Skipasmíði í Póllandi Smiði skrokks ísloft hf. Blikksmiði Útrás ehf. Hönnun og ráðgjöf Vélasalan hf. Cummins aóalvél Naust Marine Schottel skrúfubúnaður Atlas hf. Bógskrúfa, Palfinger krani og dælur Landvélar ehf. Vökvadælur, mótorar og stýring Vökvakerfi ehf. Vökvadælistöð Rafhitun sf. Rafskautsketill R. Sigmundsson hf. Ampledan kallkerfi, tölvuplotter, giróáttaviti og sjálfstýring Spennubreytar hf. Spennir fyrir landtengingu Samey ehf. Aðvörunarkerfi Eltek Brunavarnarkerfi Icedan Viking bjargbátar Slippfélagið hf. Hempels skipamálning Rafboði ehf. Raflagnir og töflur Brimrún ehf. Furuno radar Lloyds Register Flokkun og eftirlit Siglingastofnun Flokkun og eftirlit Á efra farþegaþilfari er yfirbygging sem samanstendur af stýrishúsi á reisn og sam- byggt því er farþegahús og þilfarshús aft- ast. Á brúarþaki er radar og ljósamastur. Skipið var allt sandblásið frá kili upp í masturstopp og málað með Hempels skipamálningu. Vistarverur I Sævari eru tvö farþegarými; neðra- og efra farþegaþilfar. Farþegi sem kemur um iandgang um borð kemur inn í skipið á efra farþegaþilfari. I salnum er aðstaða fyrir 20 manns í þremur sætabásum og sófa. Stigagangur er frá salnum upp í brú. Frá efri sal er stigi niður í neðri sal og þar eru sæti fyrir 50 manns í sex og átta sæta básum, stjórnborðs- og bak- borðsmegin. Milli sæta eru borð. Fremst í salnum er afgreiðsluborð fyrir léttar veitingar og þar er jafnframt flóttaleið upp á efra farþegaþilfar framskips. Aftast í salnum er útgangur um stiga aftur á vöruþilfar. I farþegasölum eru þrjár snyrtingar, tvær í neðri sal og ein í efri sal. Aðstaða fyrir áhöfn er í brú ferjunnar. Ein innréttuð káeta er fyrir áhöfn ásamt snyrtingu og setkrók. Fyrir áhöfn er kæli- skápur og örbylgjuofn. I stýrishúsi stjórnborðsmegin eru stjórn-, siglinga- og fjarskiptatæki í tækjaborði. I brúnni eru tveir skipstjórn- arstólar frá E. Vejvad Hansen; annar í braut en hin fastur. Á brúarþaki er rat- sjár- og fjarskiptamastur, 1000 W kast- ari er á brúarþaki með stjórntækjum í stýrishúsi. Vistaverur eru þiljaðar með Famos veggþiljum og skipið er einangrað með steinull. Upphitun skipsins er miðstöðv- arhitun sem notar kælivatn frá aðalvélum eða hita frá rafskautskatli frá Rafhitun. Farþegasalir og brú eru loftræst með loft- blásurum og er loftið hitað frá miðstövar- kerfi skipsins. Fyrir útsog frá snyrtingum er Klimor blásari, 600 m3 í þilfarshúsi. Loftræsting fyrir sali, framskip og brú er Klimor blásari 3000 m' í klefa stjórn- borðsmegin fyrir framan neðri sal. Vöruþilfar Á afturskipi er vöruþilfarið sem nær yfir breidd skipsins og er um 6 metrar að lengd. Aftast á vöruþilfarinu er vökvaknúinn 3 metra breiður skuthleri sem hægt er að leggja niður við lestun og losun. Lestunar- og losunarkraninn er frá Pal- finger af gerðinni PK 1808 MA, 160 kNm. Vinnusvið kranans er 1,5 til 8 metrar og 360°. Kraninn er búinn 2 tonna vírspili. Honum var komið fyrir stjórnborðsmegin á þaki þilfarshúss. Vökvadælistöð kranans er frá Vökvakerfi ehf., 30 1/min, 280 bör og 18 kW. Bak- borðsmegin aftast á vöruþilfari er skor- steinshús. I húsinu eru loftblásari fyrir vélarúm af gerð ALWO, 9000 m3/klst. ásamt hljókútum véla. 250W flóðljós fyrir vöruþilfar er á skorsteinshúsi. 44

x

Ægir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.