Ægir - 01.12.2000, Síða 8
FRÉTTIR
Forstöðumaður greiningar hjá Islandsbanka - FBA
metur sjávarútvegsárið 2000:
Hagræðingin gengur hægar
í greininni en vænst var
- segir Almar Guðmundsson
„Segja má að síðari hluti þessa árs hafi
reynst mörgum félögum í sjávarútvegi
erfiður. Að mati undirritaðs stefnir þó í
að árið 2000 verði betra en árið 1999 að
því leyti að fjármunamyndun mun að lík-
indum aukast hraðar milli ára en fjár-
binding í eignum, sem er jákvætt. A
hinn bóginn er rétt að hafa í huga að það
er fyrirséð að t.d. arðsemi eigin fjár 11
stórra sjávarútvegsfélaga á markaðnum
verður minni í ár en hún var árið 1999 og
skýrist það einkum af því að gengistap
vegna hækkunar á höfuðstól erlendra
skulda sjávarútvegsfélaganna hefur nei-
kvæð áhrif á hagnaðinn á þessu ári. Það
dregur ágætlega fram mikla skuldabyrði
félaganna, en nauðsynlegt er að hafa í
huga að þessi þróun kemur alls ekki öll
niður á fjármunamyndun félaganna," seg-
ir Almar Guðmundsson, forstöðumaður
greiningar hjá Islandsbanka-FBA í grein
í Ægi að þessu sinni. I greininni fer
Almar ítarlega í gegnum stöðu sjávarút-
vegsgreinarinnar út frá sjónarhóli fjár-
málamarkaðarins og skýrir hvaða ástæður
liggja að baki lækkandi gengi margra
félaga og þar með minnkandi mark-
aðsvirði þeirra.
„Verðmyndun á hlutabréfamarkaði
mótast mjög af væntingum á hverjum
Gríðarlegt eignatjón í bruna ísfélagsins
i Vestmannaeyjum:
Möguleikar til loðnufryst-
ingar skýrast um jólin
Bolfisklína ísfélagsins var aðeins tveggja ára gömul
þegar vinnsluhúsin brunnu.
Eitt mesta tjón í bruna í
fiskvinnslufyrirtæki hér á
Landi varð þann 9. des-
ember þegar vinnsluhús
ísfélags Vestmannaeyja
stórskemmdust. Áfallið er
mikið fyrir félagiö og mun
hafa áhrif á rekstur þess
en ekki síður er höggið
þungt fyrir starfsfólk fyrir-
tækisins og Vestmanna-
eyjabæ í heild.
Um hátiðarnar mun skýr-
ast hvernig ástand tækja-
búnaðar er gagnvart fryst-
ingu á loðnu en vonast er
til að hægt verói að gera
fyrirtækið klárt til þeirrar
vinnslu í tæka tíð. Að
jafnaði er hægt að hefja
frystingu þegar kemur fram í byrjun febrú-
armánaðar en miklu getur skipt í þessu til-
felli að hægt verði að frysta loðnu bæði á
Rússlandsmarkað og Japansmarkað.
Ljóst er að mun lengri timi mun líða áður
en bolfiskvinnsta fyrirtækisins kemst i samt
lag, enda eyðilögðust bolfisklínur í eldin-
um. Sú aðstaða fyrirtækisins var með því
besta sem þekkist á tandinu og til að mynda
var ný fiæóiiina tekin þar í gagnið fyrir um
tveimur árum.
tíma. Segja má
að verðþróun á
sjávarútvegsfyr-
irtækjum sýni að
væntingar fjár-
festa um aukna
hagræðingu í
sjávarútvegi hafa
ekki gengið eftir
og að þróunin
hefur verið mun
hægari en vænst
var,“ segir Al-
mar.
Að hans mati
er vafamál að nokkur atvinnugrein á Is-
landi búi við jafn mikið óöryggi og sjáv-
arútvegurinn. „Þess vegna er brýnt að
stjórnkerfi fiskveiða verði komið í þá
stöðu að friður geti ríkt um það. Afnema
þarf þak á hámarkskvótaeign hverrar út-
gerðar, þótt þessar skorður takmarki
kannski ekki hagræðingu nema að litlu
leyti ennþá. Engu að síður er mikilvægt
að greininni sé gert kleyft að þróast án
slíkra takmarkana. Þá verður að teljast
eðlilegt að sjávarútvegur búi við sömu
skilyrði og flestar aðrar greinar hvað varð-
ar leyfi erlendra aðila tii að fjárfesta í
greininni. Að lokum skal hér nefnt að
óvissa á vinnumarkaði hefur ekki jákvæð
áhrif á virði sjávarútvegsfyrirtækja, tíð
verkföll eru slæm og nauðsynlegt að
launakerfm nái betur fram sameiginleg-
um hagsmunum hluthafa og starfs-
manna," segir Almar.
Almar telur ennþá til staðar tækifæri
til hagræðingar í íslenskum sjávarútvegi.
„Síðustu ár einkenndust af mikilli upp-
byggingu og fjárfestingu, ásamt stækk-
andi fyrirtækjaeiningum. Á næstunni
munu fjárfestingar ekki skipa jafn stóran
sess og síðustu ár, heldur verður mikil-
vægara að ná fram aukinni hagræðingu
með því að minnka fjárbindingu í
rekstri."
Sjá grein Almars „Arðsemi í sjávarút-
vegi ekki nægileg" á bls. 40.