Ægir

Årgang

Ægir - 01.12.2000, Side 36

Ægir - 01.12.2000, Side 36
íSiÉsfi£j HVERNIG VAR... Skip frá Klna og Chile Ef hægt er aó tala unn útrás í skipasmíðaiðnaði þá varð hún sannarlega á árinu 2000 og áhugi íslenskra kaupenda beindist fyrst og fremst að Kina og Chile. Bæði var um aó ræða nýsmíðar skipa og einnig breytingar en nokkuð hefur bor- ið á þvi aó verkum hafi seinkað verulega. Llnd- ir árslok heyrðust raddir frá útgerðarmönnum sem hyggjast smiða hér heima, þrátt fyrir lægri tilboð erLendis frá. hyglina að að þeim gífurlegu peningum sem liggja í kvóta miðað við núverandi aðstæður og eignasöfnun fárra. Þetta auðveld- ar ekki að finna lausn í fiskveiði- stjórnun sem sæmileg sátt getur orðið um. Málið dró einnig at- hyglina að því að fólk í sjávar- plássunum er algerlega háð ákvörðunum handhafa kvótans og óöryggið því mikið.“ „Þróunin á næsta ári verður í megindráttum sú sama og á þessu ári að óbreyttum lögum," segir Kristinn H. Gunnarsson að sfðustu. „Fyrirtækjum fækkar og þau stækka, kvótinn færist áfram á stærri staðina og sem fyrr til Faxaflóa og Eyjafjarðar. Meðan ástand fiskistofnanna er ekki betra en það er mun verða áfram búseturöskun. Líklegt er að áfram safni greinin skuldum og minn grunur er sá að æ fleiri kvótahafar freistist til þess að breyta kvótanum í pen- inga." Skýjaborgirnar hrundu - segir Pétur Hafsteinn Pálsson, framkvæmdastjóri Vísis hf. í Grindavík „Þessa árs verður minnst fyrir það að vera árið þegar skýjaborgirnar hrundu og útvegurinn komst á jörðina aftur. Á árinu 2000 endurupp- lifðu menn þær sveiflur, og nú niðursveiflu, sem flestir voru búnir að gleyma, þó sögubækurnar séu fullar af þessum dæmum," segir Pétur Hafsteinn Pálsson, framkvæmdastjóri Vísis hf. í Grindavík. leika og ósanngjarnrar umræði muni enn fleiri taka þá ákvörðun að hætta starfsemi í sjávarútvegi á næsta ári og eigi þetta einkum við um smærri aðila í grein- inni. Þetta geti þýtt fleiri sameiningar og sölur, en ákveðinn annmarki sé þó á því. Bankarnir hafi nú þegar gleymt góðærisloforðinu um að standa eigi með fyrirtækjum í blíðu og stríðu - og fjárfestar og almenningur hafi misst trú á að fjárfesta í undirstöðu- atvinnugreininni. „Þetta þýðir að peningar eru ekki til fyrir þá sem vilja kaupa og sameining fyrirtækja færir eigendum aðeins illseljanleg hlutabréf og telst ekki fýsilegur kostur. Sú staðreynd að umræðan um að leyfa erlend- ar fjárfestingar x útgerðinni er komin upp á borðið mun leiða af sér stóraukna ásókn stórra erlendra vinnslu- og markaðsfyrirtækja í íslenskan sjávarút- veg. Þau munu, vegna umræðunnar og erfiðleikanna, hvort sem fjárfestingin verði leyfð eða ekki á árinu, fara af stað af fullum þunga og finna leppa til að tryggja sér fisk til vinnslu í stóru fullvinnslufyrir- tækjunum í Evrópu sem nú standa tóm vegna minnkandi framboðs á fiski. Nái greinin ekki að verj- ast þessu og keppa við þessa risa mun okkar helsta von í framtíðinni - sem er fullvinnsla afurða, sem er þó teyjanlegt hugtak, og dreifing frá Islandi - hverfa eins og dögg fyrir sólu og við festast endanlega í því hlutverki að útvega öðrum aðgang að besta hráefni sem völ er á í heiminum," segir Pétur. Hann bætir við að árið 2001 muni í íslenskur sjáv- arútvegur einkennast af varnarbaráttu gagnvart auknum gjaldtökum af hinu opinbera og vörn gangvart fjársterkum ríkisstyrktum keppinautum Is- lendinga á markaðsvæðunum, sem þýði að víglínan færist frá hreppapólitík í alvöru tilverustríð við út- lönd, bið eftir auknum veiðiheimildum og bið eftir að trú banka, almennings og fjárfesta vaxi á ný á sjáv- arútvegi á Islandi. Pétur Hafsteinn Pálsson. „Enn minnistæðara verður þetta ár af þeim sökum að á sama ári urðu menn sammála um að best væri fyrir alla að skattleggja greinina enn frekar í framtíðinni svo ekki myndist óhóflegur gróði hjá fyrirtækjum og eigendum þeirra. Að öðrum kosti stóð útvegurinn frammi fyrir því að settar yrðu nýjar reglur sem gert hefðu sjávarútveginn verðlausan á ný.“ Hvað varðar helstu nýmæli ársins í íslenskum sjáv- arútvegi minnir Pétur Hafsteinn á að sjávarútvegsfyr- irtæki tóku þátt í fiskeldi fyrr á árum sem óvirkur hluthafi að stærstum hluta. „Nú eru menn farnir að líta á fiskeldi sem hluta af reksrarumhverfi fyrirtækja og stoð undir markaðssókn og framleiðslu. Þetta má greina í aðgerðum okkar stærstu fyrir- tækja á árinu og tel ég það til nýmæla. Fyrir utan að byggja ný skip, misjafn- lega hagkvæm, hefúr greinin í heild verið að koma sér úr sókn og í vörn. Merkir við- burðir voru því ekki áberandi á árinu," segir Pétur Haf- steinn. Það er mat Péturs Haf- steins að í kjölfar erfið-

x

Ægir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.