Árbók Háskóla Íslands - 01.01.1912, Blaðsíða 31
31
iungu með munnlegum æfingum og skýrði jafnframt hin
helstu atriði íslenskrar máljrœði. Ein stund á viku.
Prófessor, dr. phil. Ágúst H. Bjarnason:
1. Fór í sálarfrœði yfir: Psykologi i Omrids eftir H. Höff-
ding, alla bókina nema kaflana I—IV; og fór síðan aftur
með æfingum og yfirheyrslum yfir alla rökfrœðina og
sálarfrœðina. Fjórar stundir á viku.
2. Hjelt fyrirlestra fyrir almenning, 12 að tölu, um sögu
viðreisnarinnar (renaissancen) í skáldskap, listum og vís-
indum. Ein til tvær stundir á viku.
Dócent Jón Jónsson:
1. Fór í fyrirlestrum yfir sögu Haralds konungs liárfagra,
bygging íslands og landnám og fyrri hluta sögualdar
(lýst stjórnarskipun og löggjöf og gerð grein fyrir helstu
ættum og viðburðum til 980 hjer um bil). Tvær stundir
á viku.
2. Las fyrir um sögu- og fornfrœðaiðkanir íslendinga eflir
siðaskiftin (menningarástandið á íslandi á 14. öld og fram
að siðaskiftum, annálaiitun á seinni hluta 16. aldar og
Arngrim lærða og ritstörf hans). Ein stund á viku.
Agrégé A. Courmont:
1. Hjelt áfram fyrirlestrum sinum um leikritaskáld Frakka
á Í7. öld og lýsti aðallega leikritum Moliére’s. Las siðan
fyrir valda kafla úr verkum hans. Sami stundafjöldi og
áður.
2. Æfingar i frönsku fyrir byrjendur. Vóru notaðar sömu
bækur og fyrra misserið. Sami stundafjöldi.
3. Æfingar í frönsku fyrir þá, sem lengra voru komnir.
Voru notaðar sömu bækur og fyrra misserið. Sami
stundatjöldi.
Dr. phil. Helgi Jónsson:
Hjelt allan marsmánuð fyrirlestra fyrir almenning um
frumdrög jurtafrœðinnar. Tvær slundir á viku.