Árbók Háskóla Íslands - 01.01.1912, Blaðsíða 63
63
úr sjóðnum, skal varið til styrktar íslenskum kvenmönnum, sem stunda
nám við Háskóla íslands, á þann hátt og eftir þeim reglum, sem há-
skólaráðið nánar ákveður.
Skyldi svo að bera, þegar sjóðurinn hefur náð framanrituðu há-
marki eða þar yfir, að eigi sje, að dómi háskólaráðsins, alla jafna þörf
á eða fullkomin ástæða til að verja vöxtum sjóðsins á þann hátt, sem
að ofan greinir, þá skal því heimilt að verja vöxtunum að meira eða
minna leyti, í eitt skifti eða oftar, til að vcrðlauna eða styðja vísinda-
lega starfsemi íslenskra kvenna, er útskrifaðar sjeu frá Háskóla ís-
lands, eða styrkja þær til utanfarar í vísindalegu skyni.
5. gr.
Sjóðurinn stendur að öllu leyti undir stjórn háskólaráðsins. t*að
semur árlegan reikning sjóðsins og skal hann birta annaðhvort í
Stjórnartíðindunum eða í ársriti því, er háskólinn kann að gefa út, og
slikir reikningar eiga lieima í.
6. gr.
Á stofnskrá þessari skal leita konunglegrar staðfestingar.
Fyrir liönd gefendanna.
I samskotanefnd Minningarsjóðs Hannesar Hafsteins.
Reykjavík 12. febr. 1912.
Guðn'in Björnsdóltir Ácjústa Sigjúsdóltir
formaður. fjehiróir.
Staðfest af konungi 4. mars 1912.