Árbók Háskóla Íslands - 01.01.1912, Blaðsíða 28
28
Aukakénnari Þórður Sveinsson, spítalalæknir:
1. Rjettarlœknisfrœði. Fór með eldri nemendum með yfir-
heyrslum og viðtali yfir Förste og anden Række af Rets-
medicinske Forelæsninger eftir K. Pontoppidan og
ennfremur var notuð við kensluna Hugo Marx: Praktik-
um der gerichtlichen Medizin. Til kenslunnar gekk 1
stund á vilcu, bæði misserin.
2. Hjelt fyrirlestra um helstu tegundir af geðveiki, 1 stund
á viku, bæði misserin. Til hliðsjónar var notuð E.
Kraepelin: Einfiihrung in die Psychiatrische Klinik.
Aukakennari Andrjes Fjeldsted, augnalæknir:
Augnasjúkdómar: Fór með yfirheyrslu og viðtali með
elstu nemendum í 2 stundum á viku, bæði misserin, yfir
Curt Adam: Augenpraxis. Ennfremur voru lesnir nokkrir
kaflar úr Michel: Klinischer Leitfaden der Augenheilkunde.
Auk þess hafði hann verklegar æfmgar, 1 stund á viku, bæði
misserin, í að greina augnasjúkdóma og skoða og ákveða
sjónskerpu sjúklinga.
Aukakennari Ólafur Þorsleinsson, háls-, nef- og eyrnalæknir:
Kendi eldri nemendum háls-, nef- og egrnasjúkdóma
með fyrirlestrum, yfirheyrslu og viðtali, 1 stund á viku siðara
misserið. Kayser: Kehlkopf-, Nasen- und Ohrenkrankheiten
var notuð við kensluna.
Auk þess veitti hann tilsögn, við ókeypis lækning há-
skólans, í aðgreining og meðferð á þessum sjúkdómum 1
stund á viku, bæði misserin.
Aukakennari Ásgeir Torfason, efnafræðingur:
Fór með yfirheyrslum í 4 stundum á vikuj í fyrra
misserinu, með yngstu nemendum yfir ólífrcena efnafrœði.
Notuð var við kensluna Odin Christensen: Uorganisk
kemi.
Ennfrennir hafði hann, bæði misserin, 3x3 stundir á
•viku æfmgar í ólifrœnni efnarannsókn. Voru nemendur
æfðir i að þekkja helstu sýrur og basa og greina þessi efni
í sundur í margvislegum efnablöndum.