Árbók Háskóla Íslands - 01.01.1949, Síða 13
11
og handknattleik í húsinu, og er þess að vænta, að þér leitið
þessara leikja í stað þess að sækja veitingastofur eða eyða
tímanum í fánýtt slór. Því að mikið er undir því komið, að
þér hagnýtið yður háskólann sem bezt má verða, því að á
þessum árum leggið þér grundvöll að framtíðarlifi yðar og gæfu.
Oss háskólakennurum er ljóst, að margt stendur enn til bóta
um, að þér náið sem beztum árangri á háskólaárunum og
verðið vel undir lífið búnir. Hefur háskólaráð því nýlega sam-
þykkt, að kennarar skuli framvegis halda fjarvistarskrá tii
þess að hafa betri yfirsýn yfir nám stúdenta, og mun slíkt
eftirlit verða til þess, að þeir einir stúdentar geti vænzt þess
að verða aðnjótandi náms- og húsaleigustyrkja, er sýna það,
að þeir stundi nám sitt af kappi. Háskólinn mun og hafa sam-
ráð við stjórn stúdentagarðanna, að engir fái þar dvöl, er
eigi hafi sýnt sig þess maklega. Þetta er sjálfsögð krafa af
hendi háskólans og á að ráða bót á ýmsum misfellum, er
komið hafa fyrir á undanfömum árum. Við suma ameríska
háskóla tíðkast, að stúdentar verði að færa sönnur á, að þeir
hafi sótt um 75% af öllum þeim kennslustundum, er taldar
eru nauðsynlegar í hverri grein, til þess að fá leyfi til að ganga
undir próf. Háskólaárið byrjar nú að réttu lagi 15. sept., en
margir stúdentar hafa oft og tíðum ekki komið til náms fyrr
en fyrstu dagana í október. Má búast við, að framvegis verði
tekin upp sú regla, að stúdentar skuli komnir til náms eigi
síðar en nokkrum dögum eftir að háskólaárið hefst, og skuli
sá síðasti dagur ákveðinn, er stúdentar geti komið til náms,
en þeir, er eftir þann dag koma, fái eigi aðgang að háskólanum
næsta misseri, nema með sérstöku leyfi og óviðráðanlegar
ástæður hamli. Þessi siður tíðkast við marga erlenda háskóla.
Þannig mun stjóm háskólans leitast við að skapa fastari reglur
um allt háskólanám. Háskólanum er eigi nóg að skapa fastara
aðhald um allt nám og veita stúdentum fræðslu, eins og bezt
verður á komið, heldur er honum einnig annt um, að stúdentar
temji sér háttprýði í hvívetna, og til þess eru lög og reglur
háskólans. Oss Islendingum er borið á brýn, að oss skorti mjög
háttvísi og umgengnisvenjur, og er enginn vafi á því, að í