Árbók Háskóla Íslands - 01.01.1949, Blaðsíða 108
106
Lánasjóður.
Nú á þessu starfsári hefur stúdentaráð gert margvíslegar tilraunir
til þess, að komið væri á fót sérstökum lánasjóði fyrir stúdenta.
Var það gert með það fyrir augum, að þeir stúdentar, sem ekki
hefðu efni á að kosta nám sitt að öllu leyti sjálfir, gætu fengið hag-
kvæm lán úr þessum sjóði með lágum vöxtum og endurgreiðslu að
afloknu námi. Talað var við rektor og rætt við hann um fyrirkomu-
lag og tilhögun þessa sjóðs. Hafði hann góð orð um, að háskólinn
yrði hjálplegur með þetta og styrkti það á einhvem hátt, e. t. v.
greiddi vexti að hálfu móti lántakanda. Þessu máli er ekki lokið
enn, en góðar undirtektir hafa fengizt. Lokaafgreiðslan hefur tafizt
mjög vegna alþingiskosninganna, þar eð hlutaðeigendur af hálfu
bankans, er semja átti við, hafa verið fjarstaddir.
Félagsheimili.
Margt hefur verið rætt um þetta mál. Mörg bréf hafa verið rituð
út til stúdentasambanda eriendis, þar sem slík félagsheimili eru rek-
in, og þau beðin um upplýsingar. Ennfremur hefur verið leitað til
íslenzkra stúdenta erlendis og eldri stúdenta hér heima, er dvalið
hafa erlendis og þeir beðnir að vera hjálplegir með tillögur og upp-
lýsingar varðandi þetta mál. En því miður hefur árangurinn af
þessu starfi orðið fremur lítill, en hins vegar fer þetta mál að verða
meir og meir aðkallandi eftir því, sem tímar líða og stúdentum
fjölgar.
Strætisvagnaferðir.
Tilraunir hafa verið gerðar til þess að fá hentugar strætisvagna-
ferðir um Hringbrautina og fram hjá Gamla-Garði, með það fyrir
augum, að stúdentar gætu haft not af þeim, er þeir færu úr og
í skólann. Ekki hefur enn endanlega verið hægt að ganga frá þessu,
en vonir standa þó til, að svo verði.
Sumaratvinna.
Stúdentaráð beitti sér fyrir því á s. 1. vori, að stúdentum gæfist
kostur á að vinna við lagfæringu háskólalóðarinnar s. 1. sumar.
Sneri það sér til rektors með þetta, sem tók málinu vel og hét því
stuðningi sínum. Náði þetta mál síðan fram að ganga, og munu
margir stúdentar hafa pælt í lóðinni í sumar.
Hlunnindi.
Nú eins og áður beitti stúdentaráð sér fyrir því, að stúdentar
fengju afslátt á aðgöngumiðum að leiksýningum Leikfélags Reykja-