Árbók Háskóla Íslands

Årgang

Árbók Háskóla Íslands - 01.01.1949, Side 13

Árbók Háskóla Íslands - 01.01.1949, Side 13
11 og handknattleik í húsinu, og er þess að vænta, að þér leitið þessara leikja í stað þess að sækja veitingastofur eða eyða tímanum í fánýtt slór. Því að mikið er undir því komið, að þér hagnýtið yður háskólann sem bezt má verða, því að á þessum árum leggið þér grundvöll að framtíðarlifi yðar og gæfu. Oss háskólakennurum er ljóst, að margt stendur enn til bóta um, að þér náið sem beztum árangri á háskólaárunum og verðið vel undir lífið búnir. Hefur háskólaráð því nýlega sam- þykkt, að kennarar skuli framvegis halda fjarvistarskrá tii þess að hafa betri yfirsýn yfir nám stúdenta, og mun slíkt eftirlit verða til þess, að þeir einir stúdentar geti vænzt þess að verða aðnjótandi náms- og húsaleigustyrkja, er sýna það, að þeir stundi nám sitt af kappi. Háskólinn mun og hafa sam- ráð við stjórn stúdentagarðanna, að engir fái þar dvöl, er eigi hafi sýnt sig þess maklega. Þetta er sjálfsögð krafa af hendi háskólans og á að ráða bót á ýmsum misfellum, er komið hafa fyrir á undanfömum árum. Við suma ameríska háskóla tíðkast, að stúdentar verði að færa sönnur á, að þeir hafi sótt um 75% af öllum þeim kennslustundum, er taldar eru nauðsynlegar í hverri grein, til þess að fá leyfi til að ganga undir próf. Háskólaárið byrjar nú að réttu lagi 15. sept., en margir stúdentar hafa oft og tíðum ekki komið til náms fyrr en fyrstu dagana í október. Má búast við, að framvegis verði tekin upp sú regla, að stúdentar skuli komnir til náms eigi síðar en nokkrum dögum eftir að háskólaárið hefst, og skuli sá síðasti dagur ákveðinn, er stúdentar geti komið til náms, en þeir, er eftir þann dag koma, fái eigi aðgang að háskólanum næsta misseri, nema með sérstöku leyfi og óviðráðanlegar ástæður hamli. Þessi siður tíðkast við marga erlenda háskóla. Þannig mun stjóm háskólans leitast við að skapa fastari reglur um allt háskólanám. Háskólanum er eigi nóg að skapa fastara aðhald um allt nám og veita stúdentum fræðslu, eins og bezt verður á komið, heldur er honum einnig annt um, að stúdentar temji sér háttprýði í hvívetna, og til þess eru lög og reglur háskólans. Oss Islendingum er borið á brýn, að oss skorti mjög háttvísi og umgengnisvenjur, og er enginn vafi á því, að í
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114

x

Árbók Háskóla Íslands

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Árbók Háskóla Íslands
https://timarit.is/publication/588

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.