Árbók Háskóla Íslands - 01.01.1949, Blaðsíða 75
73
eru á, að árið 1949—50 muni enn vont versna með greiðslur
til útlanda á nauðsynjabókum til safnsins.
Til aðstoðar bókaverði um veturinn voru Björn Jónsson,
stud. theol., röðunarmaður í safninu, og Guðsteinn Þengilsson,
stud. mag. spjaldskrárritari þess. Á þessum vetri tókst fyrsta
sinni að mynda heild úr spjaldskrám safnsins og opna hana
alla notendum í lestrarsal. Ekki er það þó nema tugaskráin,
stafrófsskrá hins vegar ógerð nema um lestrarsalsbækur, ævi-
sagnahöfunda og nokkrar smágreinar. Óskráð með öllu eru
sérprent í flestum efnisgreinum, og nokkrir bókaskápar eru
enn utan spjaldskrárinnar. Lokið var tilfærslum bóka úr efri
hæðum safns í kjallarann undir, sem hafði mestallur verið
búinn bókaskápum, en rúmar enn mikinn safnsauka.
Vorið 1949 gengu í gildi ný lög um Landsbókasafn og varða
mjög samvinnu þess og Háskólabókasafns og annarra fræði-
safna. En hindranir, sem kunna að vísu að vera tímabundnar,
fyrirbyggja, að tilætlaður samvinnuárangur náist. Frumskil-
yrði væri, að einhver bókavörður ynni nær óskiptur í þágu
samvinnunnar og hefði það húsnæði til aðseturs („skráningar-
miðstöð"), sem ekki hefur enn fundizt við hæfi, hvorki í há-
skólanum né Landsbókasafni.
Bókanotkun var lítið eitt meiri en undanfarið ár. Hún nam
í lestrarsal og stofu 12401 bd. og skiptist í greinar: blöð og
rit almenns efnis 1774, handrit, eftirmyndir og fágæt rit 418,
heimspeki 44, trúarbrögð 1034, lögfræði og félagsfræði 1587,
skólamál, venjur og þjóðsagnir 597, málfræði 1832, náttúru-
fræði 132, verkleg fræði 103, læknisfræði 915, listir 66, leik-
list, leikir og íþróttir 80, erlend bókmenntasaga 218, íslenzkar
bókmenntir 2263, erlendar bókmenntir 241, sagnfræði 593,
landafræði 81, ævisögur 423 bd. Útlán námu 2702 bd. og
skiptust þannig: blöð og rit almenns efnis 218, fágæt rit 4,
heimspeki 14, trúarbrögð 248, lögfræði og félagsfræði 315,
skólamál og þjóðsagnir 167, málfræði 227, náttúrufræði 21,
verkleg fræði 62, læknisfræði 217, listir 6, leiklist og íþróttir
26, erlend bókmenntasaga 86, íslenzkar bókmenntir 524, er-
lendar bókmenntir 148, sagnfr. 177, landafr. 24. ævisögur 218 bd.
10