Árbók Háskóla Íslands - 01.01.1953, Blaðsíða 8
6
stofnað minningarsjóð Jóns Þorlákssonar til styrktar verk-
fræðinemum við Háskóla íslands, eða til framhaldsnáms þeirra
við annan háskóla, að upphæð 50 þús. kr., og var sjóður þessi
stofnaður, er liðin voru 75 ár frá fæðingu hins mikilhæfa verk-
fræðings og stjórnmálamanns. Fyrir þessar gjafir flyt ég al-
úðarfyllstu þakkir háskólans.
Háskólanum er annt um, að sem flestir kennarar hans sinni
vísindastörfum og sjálfstæðum rannsóknum, og hefur áður lát-
ið gera tvær skrár um rit háskólakennara, frá 1911—1940 og
1940—46. Nú kemur út í ár þriðja skráin, fyrir árin 1947—51,
og er áformað að gefa slíka skrá út á 5 ára fresti. Geta menn
þá auðveldlega kynnzt þeim ritstörfum, er hver háskólakennari
leysir af hendi, en um leið ætti útgáfa slíkra skráa að vera
til uppörvunar og hvatningar öllum nýjum háskólakennurum,
er á hverjum tíma bætast við, og minna þá á þær skyldur,
er á þeim hvíla.
Háskólanum er nauðsyn að líta á sig sem einn lítinn bróð-
ur í samfélagi annarra háskóla í heiminum, og kennurum ber
að keppa að því að birta ritgerðir sínar og bækur á erlendum
málum um þau efni, er ætla má, að eigi erindi til annarra
þjóða. Margs konar félagasamtök rísa nú upp í veröldinni,
einnig á sviði vísindaiðkana og sérstakra fræðigreina. Jafnvel
félag háskóla hefur nýlega verið stofnað (Association des Uni-
versités), og er markmið þess að safna upplýsingum um sem
flesta háskóla í heimi, koma á samstarfi milli þeirra, einkum
kennara og stúdenta, og stofna skrifstofu, er geti veitt upplýs-
ingar um nám við aðra háskóla, hvar sem er í heiminum, og
sjái um dreifingu þeirra meðal allra þeirra, er að félagssam-
tökunum standa. Verður hún í París og mun annast allar
skýrslugerðir og önnur mál, er háskólana varða, þar á meðal
upplýsingar um ný rannsóknartæki í ýmsum fræðigreinum, út-
vegun kennslubóka o. fl. Háskóli vor verður að hafa þann
metnað að vinna að alþjóðlegu samstarfi í ýmsum greinum
vísindanna, og er því mjög gleðilegt, að allmargir háskóla-
kennarar hafa á síðastliðnu ári átt þess kost að taka þátt í al-
þjóðlegum mótum og hafa flutt þar fyrirlestra, en öðrum ver-