Árbók Háskóla Íslands - 01.01.1953, Blaðsíða 115
113
voru læknanemarnir Ólafur Haukur Ólafsson og Magnús Sigurðsson,
form. íþróttafélags stúdenta. Að loknum þessum almenna stúdenta-
fundi fór fram atkvæðagreiðsla um íþróttaskylduna og er hennar
getið annars staðar í skýrslunni.
2) Fundurinn um „stofnun innlends hers“ fór fram í Sjálfstæð-
ishúsinu 18. marz 1953. Fundarstjóri var skipaður Gísli Jónsson stud.
mag., varafundarstjóri Sveinn Skorri Höskuldsson stud. mag. og
fundarritarar þeir Haraldur Bessason stud. mag. og Bjarni V. Magn-
ússon stud. jur.
í byrjun fundarins var samþykkt, utan dagskrár, eftirfarandi til-
laga frá Inga R. Helgasyni: Almennur stúdentafundur vítir harðlega
þá ráðstöfun rektors að banna að halda fund í salarkynnum Há-
skólans, svo að leita þyrfti til annarra húsakynna, sem aðeins eru
fáanleg á óhentugum tíma.
Síðan var snúið að aðaldagskrárefninu. Tóku fjölmargir til máls
og nokkrar tillögur voru lagðar fram. Verður ekki eltst við það hér,
en þess aðeins getið, að eftirfarandi tillaga, sem fram var borin af
fulltrúum Frjálslyndra og Vöku, var samþykkt með 140:70 atkv.:
„Almennur fundur háskólastúdenta, haldinn 18. marz 1953, lýsir
yfir eindreginni andstöðu sinni gegn herskyldu á íslandi. Meðal ann-
ars bendir fundurinn á, að vegna fámennis þjóðarinnar mundi lítið
gagn að innlendum her og vísar að öðru leyti til sérstöðu íslend-
inga meðal S.Þ. og þess, er ítrekað var, er við gerðumst aðilar að
Atlantshafsbandalaginu. Fundurinn telur, að allir íslendingar hljóti
að vera sammála um, að hinn erlendi her hverfi héðan á brott strax
og friðvænlega horfir í heiminum, en viðurkennir hins vegar alger-
lega nauðsyn þess að halda uppi vörnum landsins.
Telur hann því, að íslendingum beri að búa sig undir það af
fremsta megni að geta tekið við rekstri Keflavíkurflugvallar.
Að gefnu tilefni vill fundurinn vara við því blekkingarmoldviðri,
er kommúnistar hafa þyrlað upp um mál þetta í æsingaskyni, og
bendir á þá staðreynd, að einmitt þeir hafi krafizt þess hvað eftir
annað, að íslendingar hervæddust og tækju virkan þátt í styrjöld,
er þeir töldu það hinum erlendu yfirboðurum sínum og átrúnaðar-
goðum í hag. Sér fundurinn sérstaka ástæðu til að víta framkomu
þeirra í þessum málum sem öðrum.“
Hátíðahöld og aðrar skemmtanir.
1) Hátíðahöldin 1. desember hófust með guðsþjónustu í kapellu
Háskólans kl. 11 f. h. Sr. Árelíus Níelsson prédikaði að þessu sinni.
Kl. 13.15 hófst hópganga stúdenta frá Háskólanum að Alþingishús-
inu og var hún fjölmennari en oft áður, þrátt fyrir að nokkuð kalt
væri í veðri. Einnig var miklu meiri mannfjöldi saman kominn en
15