Árbók Háskóla Íslands - 01.01.1953, Blaðsíða 126
124
Vélavinna ................................. 6
Á togurum og sjómennska.................... 4
Lögfræðistörf ............................. 3
Landmælingar .............................. 3
Sjúkrastörf ............................... 2
Næturvarzla................................ 2
Eldhússtörf ............................... 2
Úthlutað samt. 130
Óráðnir.............. 2
Umsóknir alls ..... 132
Til gamans má geta þess, að meðal umsækjenda voru 9 kandí-
datar, 5 kvenstúdentar, 3 erlendir stúdentar og allmargir íslenzkir
stúdentar, sem stunda nám erlendis.
Til að fullnægja þessum umsóknum sneri nefndin sér til 80 at-
vinnurekenda, bréflega til 71 og munnlega til 9, og var haft sam-
band við suma þeirra margoft.
Fyrir beina tilhlutun nefndarinnar tóku 17 atvinnurekendur stúd-
enta í vinnu, en 23 sögðust hafa ráðið stúdent, einn eða fleiri, eftir
að Vinnumiðlunin hafði leitað til þeirra, þótt stúdentarnir hefðu ekki
verið beinlínis á vegum hennar. Þá ber þess að geta, að nokkrir
þeirra, sem sóttu um verkamannavinnu í Reykjavík, urðu einnig að
láta skrá sig hjá Ráðningarstofu Reykjavíkurbæjar, sem sér um
slíkar mannaráðningar til bæjarfélagsins, og var hún nú sem áður
stúdentum mjög vinsamleg og greiddi götu þeirra eftir beztu föngum.
í ár var verkefni vinnumiðlunar stúdenta tvíþætt, í fyrsta lagi að
útvega umsækjendunum vellaunaða vinnu við hæfi hvers þeirra og
í öðru lagi að kynna starfsemina til að gera hana virka og þekkta
í framtíðinni. Starf nefndarinnar hefur því ekki síður beinzt að því
að kynna og skapa traust á Vinnumiðluninni, bæði meðal stúdenta
sjálfra og atvinnurekenda. í því sambandi sendum við út dreifibréf,
sem var hvorttveggja í senn atvinnuumsókn og kynningarbréf, þar
sem skírskotað var til nauðsynjar Vinnumiðlunarinnar. Auk þess
skrifuðum við 89 persónuleg bréf.
Svo sem kunnugt er, þá hefur mikil atvinna verið hér í Reykjavík
og nágrenni á þessu ári, en þrátt fyrir það hafa samt 119 stúdentar
leitað til Vinnumiðlunarinnar, og bendir sú mikla aukning frá fyrra
ári vissulega til þess, að skilningur stúdenta á mikilvægi Vinnumiðl-
unarinnar og trú þeirra á henni fari vaxandi. Þá er nefndinni það
gleðiefni, að nokkrir atvinnurekendur hafa leitað til hennar með
beiðni um vinnuafl, og ber það vott um, að kynningarstarfsemi henn-