Árbók Háskóla Íslands - 01.01.1953, Blaðsíða 69
67
A og K, S að nafni. Téður sonur þeirra lézt tveimur árum eftir and-
lát K. Systir K, Þ, er og á lífi.
Framangreindir aðiljar vilja allir ná ítrasta rétti sínum til fjár-
muna úr búinu, en hrein eign þess nemur kr. 100 000,00. Lýsið því
í rökstuddri greinargerð, hvert eigur A skuli renna.
V. Raunhæft verkefni:
Jón Jónsson bifreiðarstjóri hafði haft sérleyfi til áætlunarferða
á leiðinni X-kaupstaður til Y-kauptúns. Ekki hafði neitt orðið fund-
ið að rækslu hans á þessu starfi.
Er að því kom, að leyfistímanum lyki, vorið 1952, sótti hann um
leyfi fyrir næsta sérleyfistímabil. Nokkrir aðrir sóttu og um leyfið,
m. a. Ferðafélag Y-kauptúns, er var félag áhugamanna og hafði á
stefnuskrá sinni fyrirgreiðslu ferðamanna, er vildu skoða Y-kaup-
tún og nágrenni.
Samgöngumálaráðherra, sem sérleyfið veitti, var þingmaður Y-
kauptúns og nágrennis, og sóttu ýmsir kjósendur hans það fast, að
ferðafélagið fengi leyfið. Á hinn bóginn var Jón flokksmaður hans,
er hafði talsverð áhrif.
Skipulagsnefnd fólksflutninga mælti með því, að ferðafélagið fengi
leyfið. Niðurstaða ráðherra varð þó sú, að Jón fengi leyfið, enda sam-
þykkti hann að greiða ferðafélaginu 1 kr. af hverjum farseðli seld-
um utansýslumanni, og skyldu greiðslur inntar af hendi til formanns
félagsins vikulega eftir á.
Jón samþykkti þetta, en var mjög óánægður með þennan samning.
Greiddi hann sama og ekkert til félagsins, þrátt fyrir tilmæli af þess
hálfu, og urðu illindi af. Lauk þessu svo að sinni, að ráðherra svipti
Jón leyfinu hinn 1. apríl s.l.
Um sama leyti höfðaði félagið mál gegn Jóni til greiðslu á eftir-
stöðvum gjaldsins, sem telja má kr. 3000,00. Jón mótmælti öllum
kröfum og taldi sig auk þess órétti beittan af ráðherra. Höfðaði
hann því mál gegn samgöngumálaráðherranum, svo og fjármála-
ráðherra f. h. ríkissjóðs. Kröfur Jóns voru aðallega þær, að honum
yrði veitt leyfið aftur, en til vara, að honum yrðu dæmdar skaða-
bætur, er, ef til kæmi, mátti telja sanngjarnlega metnar kr. 20 000,00.
Sonur Jóns, Árni, hafði full réttindi bifreiðarstjóra og ók bifreið
Jóns stundum fyrir hann. Hinn 10. marz sl. var hann á ferð til Y-
kauptúns. Er hann var að koma inn í kauptúnið og ók um aðalgöt-
una á hóflegri ferð — 30 km miðað við klst. — bar það til, að
steinhnullungur varð undir einu hjólinu og kastaðist til, þannig að
hann lenti í fætinum á konu, sem var þar á gangi. Kona þessi var
móðir hans, Guðrún Jónsdóttir, og meiddist hún talsvert á ökkla,