Árbók Háskóla Íslands - 01.01.1953, Blaðsíða 122
120
sendingu og ráðstöfun á lýsinu eftir 25. febrúar, gerði hann án nokk-
urs umboðs frá stúdentaráði og hefur því ráðstafað verulegum f jár-
verðmætum ráðsins í algeru heimildarleysi, og þessar ráðstafanir
hljóta að hafa verið gerðar gagnstætt betri vitund, þar sem Bogi
sat umræddan stúdentaráðsfund.
Sú staðhæfing Boga virðist vera á algerum misskilningi byggð, er
hann segir á fundi 25. febr., „að sér hafi verið falið að sjá um ráð-
stöfun og sendingu lýsisins“, og er hann segir á fundi 23. marz, „að
sér hefði verið falið að sjá um söfnun og sendingu lýsins hinn 10.
des. s.l.“, og ennfremur, er hann segir á sama fundi, „að samþykkt
hafi verið í ráðinu, að sú stofnun annaðist flutning á lýsinu“, en
þar á hann við I. S.R. Fundargerðir ráðsins og önnur gögn, sem ég
hef í höndum, bera það ekki með sér, að hin tilgreindu ummæli hafi
við nokkur rök að styðjast.
Varðandi afskipti Boga Guðmundssonar stud. oecon., af framan-
greindu máli virðast mér eftirgreindir þættir ámælisverðir:
1. Það kemur víða fram í málinu, að Bogi hafi átt bréfaskipti
við I. S. R. eða I. U. S. varðandi málefni stúdentaráðs. í fyrsta lagi
ættu slík bréfaskipti að falla undir verksvið utanríkisritara með vit-
und stjórnarinnar eða a. m. k. formanns, enda eðlilegast, að öll bréf
stúdentaráðs séu aðallega undirrituð af formanni ásamt meðundir-
ritun ritara (eftir atvikum aðalritara eða utanríkisritara). Ef út af
þessari reglu er brugðið, þyrftu aðrir ráðsmenn að hafa sérstakt
umboð til undirritunar. í öðru lagi er það mjög vítavert, að bréfa-
skipti þessi hafa ekki komizt í bréfasafn stúdentaráðs.
2. Bogi Guðmundsson sendi Ríkisútvarpinu frétt án heimildar á
þann veg, að starfsmenn útvarpsins höfðu fulla ástæðu til að ætla,
að heimild fréttarinnar stafaði frá réttri yfirstjórn ráðsins.
3. Þrátt fyrir það, þótt stúdentaráð hafi samþykkt hinn 25. febr.
að fá S. Þ. til að annast flutning lýsisins til Indlands, og ákveðnum
ráðsmanni falin afgreiðsla þess máls, þá gerist Bogi Guðmundsson
óbeðinn erindreki og sendi lýsið í heimildarleysi til I. S.R í Prag,
enda þótt meirihluti ráðsins hafi sérstaklega tekið afstöðu gegn
þeirri stofnun.
4. Engar fréttir hafa borizt til stjórnar stúdentaráðs um afdrif
lýsisins, og ekki er stjórninni kunnugt um, að Bogi hafi gert reka
að því að kanna þetta atriði.
Ég gat þess hér að framan, að ekki verður séð á gögnum stúd-
entaráðs, að vátryggingargjöld hafi verið greidd af farminum. Ef
svo hefur verið, að farmurinn hafi verið sendur óvátryggður, verð-
ur það að teljast stórkostleg óvarkárni.
Þau atriði, sem ég hef drepið á hér að framan undir liðum 1.—4.,