Árbók Háskóla Íslands

Volume

Árbók Háskóla Íslands - 01.01.1953, Page 82

Árbók Háskóla Íslands - 01.01.1953, Page 82
89 Þegar Ágúst H. Bjarnason hóf háskólanám í heimspeki er- lendis fyrir síðustu aldamót, var menning þjóðarinnar stórum fábrotnari en nú. Hún rann að mestu í hefðbundnum farvegi fyrri alda. Naumast var hér starfssvið fyrir aðra menntamenn en presta, lögfræðinga, lækna og nokkra kennara. En smám saman lögðu stórhuga íslenzkir námsmenn stund á æ fleiri fræði- greinir, þótt þess væri lítil von, að heimalandið gæti boðið þeim viðunanleg starfsskilyrði. Ágúst var einn þeirra áræðnu manna, sem lét hvorki vanafestu, úrtölur eldri kynslóðarinnar né dap- urlegar horfur um starfsskilyrði og efnalega afkomu aftra sér frá að leggja á nýjar brautir. Á þeim árum, sem Ágúst H. Bjarnason var við nám í Kaup- mannahöfn, var danskt menntalif í miklum blóma. Þá stóð mestur ljómi af Brandes, og aðalkennari Ágústs og vildarvin- ur, Harald Höffding, var heimsfrægur maður af ritum sínum um heimspeki og sálfræði. Sennilega hefur aldrei, hvorki fyrr né síðar, verið álitlegra að nema heimspeki við Hafnarháskóla en einmitt þá. Þó lét Ágúst sér ekki nægja þá menntun, er hann hlaut þar, heldur stundaði framhaldsnám um þriggja ára skeið við beztu háskóla í Þýzkalandi og víðar. Sjálfsagt hefði hann átt kost þess, þar sem hann hafði dvalizt langvistum í Danmörku og átti að baki sér glæsilegan námsferil, að ílend- ast þar við betri kjör en hér til fræðiiðkana. En sem betur fór, dró hin ramma taug hann heim til föðurtúna. Um fimm ára skeið var hann við kennslustörf í Reykjavik, en stundaði jafn- framt fræði sín af miklu kappi og ritaði m. a. á þessum árum doktorsritgerð um fjölhæfan og merkan frakkneskan heim- speking, Guyau að nafni, og varði hana við Hafnarháskóla 1911, sama árið og hann varð prófessor í heimspeki við hinn nýstofnaða Háskóla Islands. Átti hann því hlut að því að marka í upphafi stefnu og verksvið þessarar ungu stofnunar, og efldi hann síðan veg hennar með kennslu sinni og vísindastörfum. Starf Ágústs H. Bjarnasonar sem háskólakennara var tví- þætt: annars vegar kennsla og persónuleg áhrif á stúdentana, en hins vegar vísindalegar rannsóknir og áhrif þau, sem hann hefur haft með ritum sinum. Um fyrra atriðið mun ég vera
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132

x

Árbók Háskóla Íslands

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Árbók Háskóla Íslands
https://timarit.is/publication/588

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.