Árbók Háskóla Íslands

Árgangur

Árbók Háskóla Íslands - 01.01.1953, Síða 85

Árbók Háskóla Íslands - 01.01.1953, Síða 85
83 Iðunn í höndum hans eitt bezta og fjölbreyttasta tímarit lands- manna og sameinaði í fátíðum mæli þá tvo meginkosti: að vera í senn fróðlegt og skemmtilegt. Ágúst hafði hið mesta yndi af skáldskap og unni fögrum listum. Kemur það ekki svo mjög fram í þókum hans, en Iðunn ber þessu hugðarefni hans órækt vitni. Síðar var hann i ritstjórn tímaritsins Vöku (1927—29) og birti þar athyglisverðar ritgerðir. Af þessum dæmum má marka fjölhæfni Ágústs, hin víðfeðmu áhugamál hans og hina miklu atorku hans. Er hér þó sem vænta má margt ótalið, þæði að því er tekur til ritferlis hans og annarra starfa. Um nær hálfrar aldar skeið var hann einn atkvæðamesti andlegur forystumaður þjóðar sinnar. Ágúst H. Bjarnason var fyrirmannlegur í sjón og öllum hátt- um, alúðlega gestrisinn og höfðingi heim að sækja. Hann var maður eðlilega hófsamur, hversdagslega nokkuð fálátur, en hrókur alls fagnaðar á gleðistundum. Hann hafði þægilegt við- mót, en hélt hreinskilnislega og einarðlega á skoðunum sínum. Hann lagði alúð við hvert verk, smátt og stórt, sem hann tókst á hendur, og leitaðist við að gera það, sem sannfæring hans bauð honum. Hann var frábær lærdómsmaður, víðsýnn og var- færinn í skoðunum, jafnan reiðubúinn til að breyta þeim í sam- ræmi við aukna þekkingu, og barðist af einbeittni gegn allri hjátrú og hindurvitnum. Hann var grandvar í líferni sínu, drengskaparmaður hinn mesti, ráðhollur og tillögugóður. Hann var hinn umhyggjusamasti heimilisfaðir og unni heitt konu sinni og börnum og bar hag allrar fjölskyldu sinnar mjög fyrir brjósti. Um flesta hluti var hann gæfumaður: Hann var kvæntur hinni ágætustu konu, sem sakir hæfileika sinna og menntunar studdi hann í starfi hans og bjó honum aðlaðandi heimili. Hann átti mörg börn, öll vel gefin og vel gerð, sem nú eru fulltíða og vel metnir borgarar. Hann naut mikilla vinsælda með þjóð sinni sem skólamaður og rithöfundur, og allir, sem kynntust honum, báru traust til hans og mátu hann mikils, ekki einungis sakir hæfileika hans og þekkingar, heldur einnig og ekki síður sakir mannkosta hans. Loks tel ég honum það til gæfu, að ellin varð honum ekki köld, þar sem hann naut ástúðlegrar umhyggju
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104
Síða 105
Síða 106
Síða 107
Síða 108
Síða 109
Síða 110
Síða 111
Síða 112
Síða 113
Síða 114
Síða 115
Síða 116
Síða 117
Síða 118
Síða 119
Síða 120
Síða 121
Síða 122
Síða 123
Síða 124
Síða 125
Síða 126
Síða 127
Síða 128
Síða 129
Síða 130
Síða 131
Síða 132

x

Árbók Háskóla Íslands

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Árbók Háskóla Íslands
https://timarit.is/publication/588

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.