Árbók Háskóla Íslands - 01.01.1953, Qupperneq 90
88
mönnum eru kunn af ritum hans. Munum við, nemendur hans,
lengi minnast þeirra stunda.
Prófessor Árni var tvíkvæntur. Fyrri kona hans var Kristín
Benediktsdóttir, en hin síðari Finnbjörg Kristófersdóttir frá
Vindási á Landi, Jónssonar. Lifir hún mann sinn ásamt fimm
börnum þeirra, öllum uppkomnum, og vildi ég mega færa þeim
innilegustu samúð mína.
Jón Jóhannesson.
IX. SÖFN HÁSKÓLANS
Háskólabókasafn.
Starfsemi safnsins tók engum breytingum frá s.l. ári, og um
innri þróun er þess helzt getandi, að fyrir áramót kom út
Bókasafnsrit I um „myndunar- og skráningarstörf, afgreiðslu,
bókaval“, miðað raunar mest við þarfir nokkru smærri safna
íslenzkra, en „komið úr smiðju Háskólabókasafns" og er eftir
bókaverði þess, svo að ritið er ávöxtur þess starfskerfis, sem
þar er reynt að festa og umbæta. Menntamálaráðuneytið gaf
ritið út.
Bókaeign safnsins óx um 1971 bindi og komst í 68900, tals-
vert minna en meðalvöxtur, enda hærra verðlag en þekkzt
hefur fyrr á erlendum bókum.
Aðstoðarbókavörður var Ölafur Hjartar, tvo kafla úr árinu.
Bóklán innan safns voru 11962 og miklu færri en árið áður,
sem náð hafði hámarki þess, sem náð mun verða að óbreyttu
starfslagi. Skipting var þessi: rit almenns efnis 1757, handrit
og fágæti 684, sálfræði og siðfræði 95, trúarbrögð 751, lög-
fræði og félagsfræði 692, skólamál, íþróttir, þjóðsagnir 225,
málfræði 1369, náttúrufræði og stærðfræði 94, læknisfræði
497, gagnfræði og framleiðsla 92, listir 48, leiklist og skemmt-
anir 86, íslenzkar bókmenntir 3828, erlendar bókmenntir 450,
saga 671, landafræði og ferðasögur 221, ævisögur 402 bd.