Árbók Háskóla Íslands - 01.01.1953, Qupperneq 117
115
skipuð nefnd þriggja manna til þess að vinna að undirbúningi hinn-
ar fyrstu kvöldvöku.
í undirbúningsnefndina voru kjörnir á sama fundi þeir Haraldur
Bessason stud. mag., Matthías Johannessen stud. mag. og Ólafur
Haukur Ólafsson stud. med. Var síðan unnið sleitulaust að því að
undirbúa fyrstu kynninguna, og veitti dr. Steingrímur J. Þorsteinsson
prófessor ómetanlega aðstoð við það.
Mikill fjöldi manna var saman kominn í hátíðasal háskólans, er
kynningin fór fram, þeirra á meðal forseti íslands. Var mannfjöld-
inn svo mikill, að margir urðu frá að hverfa. Kynningin hófst með
því, að formaður stúdentaráðs flutti ávarp, en síðan hélt Steingrím-
ur J. Þorsteinsson prófessor erindi um Einar Benediktsson, skáldið
og manninn. Sveinn Skorri Höskuldsson og leikararnir Regína Þórð-
ardóttir og Lárus Pálsson lásu úr verkum skáldsins. Á milli söng
Karlakór háskólastúdenta nokkur lög við kvæði eftir Einar Bene-
diktsson.
Bókmenntakynning þessi fór fram með glæsibrag hinum mesta og
var stúdentum til mikils sóma. Henni var útvarpað síðar af segul-
bandi.
Þess má og geta, að fráfarandi stúdentaráð hefur lagt drög að
tveimur bókmenntakynningum á þessum vetri og rætt málið við
prófessorana dr. Einar Ól. Sveinsson og dr. Steingrím J. Þorsteinsson.
Er í ráði, að önnur kynningin fjalli um Bjarna Thorarensen og verk
hans. Mun dr. Steingrímur J. Þorsteinsson flytja erindi um skáldið
og verk þess; hin kynningin, sem sennilega verður í febrúarmánuði,
fjallar um Jónas Hallgrímsson, og mun dr. Einar Ól. Sveinsson flytja
erindi um hann og verk hans. Er ánægjulegt til þess að vita, að
þessum nýja þætti hafi verið hleypt af stokkunum og er vonandi,
að hann leggist ekki niður, heldur verði fastur liður í starfsemi
stúdentaráðs, verði fullkomnari og áhrifameiri með aukinni reynslu
og nýjum tilraunum.
Félagsheimilismálið. Nú er kominn mikill skriður á mál þetta,
sem lengi hefur verið á döfinni og mikið unnið að. í vor fékk Stúd-
entaráð í hendur tillöguuppdrátt, sem Ágúst Pálsson arkitekt hafði
gert að væntanlegu félagsheimili. Var það jafnframt að því spurt,
hvort það hefði einhverjar breytingartillögur fram að færa á upp-
drættinum. Svo var, og hefur nú verið gengið til móts við breyt-
ingartillögur ráðsins. í haust fékk ráðið tillöguuppdráttinn í hendur
aftur, eftir að honum hafði verið breytt að vilja þess. Var hann þá
mikið breyttur frá því í vor, og er raunar um allt annað hús að ræða.
Síðari uppdráttinn samþykkti stúdentaráð samhljóða fyrir sitt leyti,
enda vildi það ekki verða á neinn hátt til að tefja framgang máls-