Árbók Háskóla Íslands - 01.01.1953, Side 120
118
þar sem samþykkt hafði verið að fela S. Þ. flutninginn. Var tillaga
formanns samþykkt með 7 atkvæðum gegn tveimur.
í umræðum um þetta mál á fundinum sagði Bogi, „að sér hefði
verið falið að sjá um söfnun og sendingu lýsisins 10. des.s.l.“. Þá
kvað hann I. S.R. hafa boðizt til að flytja lýsið stúdentaráði að
kostnaðarlausu. Hann taldi það hefði orðið til tafar fyrir málið, ef
leitað hefði verið til S. Þ. með beiðni um fyrirgreiðslu í þessum
efnum.
Út af máli þessu urðu nokkrar umræður í dagblöðum hér í Reykja-
vík, auk þess sem það mun hafa valdið verulegum deilum meðal
háskólastúdenta.
Formaður stúdentaráðs, hr. stud. mag. Matthías Johannessen, ósk-
aði eftir því með bréfi, dags. 7. maí s.l., að ég rannsakaði mál þetta
og sendi sér skýrslu um það, áður en núverandi stúdentaráð lyki
störfum. Með bréfi stúdentaráðsformanns frá 17. þ. m. er þess einn-
ig óskað, að ég láti i ljós álit mitt á málinu.
Skýrslu mína byggi ég á neðanskráðum gögnum auk fundar-
gjörðarbókar stúdentaráðs:
Nr. 1, bréf stúdentaráðs til mín frá 7. maí 1953; nr. 2, lög um stúd-
entaráð Háskóla íslands frá 1936; nr. 3, Morgunblaðið frá 24. marz
s.l.; nr. 4, Tíminn frá sama degi; nr. 5, Alþýðublaðið frá sama degi;
nr. 6, Þjóðviljinn frá 26. marz s.sl.; nr. 7, afrit af bréfi stúdentaráðs
til Eimskip frá 26/3; nr. 8, afrit af svarbréfi Eimskip frá 27. marz
s.l.; nr. 9, afrit af bréfi stúdentaráðs til Eimskip frá 2/1; nr. 10, af-
rit af svarbréfi Eimskip frá 9. janúar s.l.; nr. 11, afrit af farmskír-
teini, dags. 3. marz s.l.; nr. 12, upplýsingar frá viðskiptamálaráðu-
neytinu; nr. 13, upplýsingar um verðlag á lýsi til útflutnings; nr. 14,
afrit af bréfi mínu til stúdentaráðs frá 16. þ. m.; nr. 15, svarbréf
stúdentaráðs frá 17. þ. m.
Að framan hefur verið rakinn gangur mála, eftir því sem hann
kemur fram í fundargjörðabók stúdentaráðs. Eins og þar sést, var
Boga Guðmundssyni falið „að vinna að söfnun loforða fyrir lýsis-
gjöfum" á fundi ráðsins 10. des. 1952. Um áramótin síðustu virðist
Bogi hafa safnað loforðum fyrir 15 tunnum af meðalalýsi, því að
2. janúar 1953 sækir hann f. h. stúdentaráðs um útflutningsleyfi fyr-
ir þessu lýsismagni, og sama dag sækir hann einnig til Eimskipa-
félags íslands h.f. um eftirgjöf á farmgjaldi á lýsinu „til megin-
landsins, eftir nánara samkomulagi“. Viðskiptamálaráðuneytið veitti
útflutningsleyfið og Eimskip eftirgjöf á farmgjaldinu.
Eins og áður er tekið fram, var rætt um flutning á lýsinu á stúd-
entaráðsfundi hinn 25. febrúar og þar samþykkt tillaga þess efnis,
að fela utanríkisritara ráðsins að leita til S. Þ. um fyrirgreiðslu varð-