Árbók Háskóla Íslands - 01.01.1963, Qupperneq 18
16
með hinu, að erlendum vísindamönnum sé boðið hingað til
fyrirlestrahalds og þó fremur til lengri dvalar hér. Er það
þakkarvert, að frá ríkinu koma nú sívaxandi framlög bæði
til þess að styrkja kennara til utanfarar og til heimboðs vís-
indamanna erlendis frá.
IV.
Á háskólahátíð er hollt að svipast um, benda á hagi og van-
hagi Háskólans og vísindalegrar starfsemi í landinu á hverj-
um tíma.
Þegar horft er um öxl, er margs ánægjulegs að minnast
frá því tímabili, sem hér hefir verið gert að umtalsefni. Ég
vil fyrst geta afmælishátíðar Háskólans á síðasta ári, sem
tengdi skólann traustum böndum við ýmsa erlenda háskóla
og vísindastofnanir og efldi tengslin við aðrar, og stuðlaði
mjög að vexti Háskólans á ýmsa lund, m. a. vegna hinna góðu
gjafa og fyrirheita, er honum bárust. Háskólinn hlaut ýmiss
konar viðurkenningu fyrir starfsemi sína, og víst er slík við-
urkenning mikilsvirði og oss öllum til uppörvunar, er við Há-
skólann störfum.
Annað, sem ég vil benda á, er raunvísindaráðstefnan, sem
haldin var í Háskólanum í ágúst 1961 að frumkvæði mennta-
málaráðherra. Sú ráðstefna tók til meðferðar frambúðar-
skipan rannsóknarmála í raunvísindum hér á landi, bæði
hagnýtra rannsókna og rannsókna í undirstöðugreinum. Sú
ráðstefna tókst mjög vel og var vekjandi og markverð. M. a.
virtist það vera ríkjandi viðhorf, að undirstöðurannsóknir
væru bezt komnar undir stjórn Háskólans. Af hálfu Háskólans
voru gerðar tillögur veturinn 1961 um nokkurn hluta þessa
verkefnis, og voru þær hugmyndir m. a. til umræðu á ráð-
stefnunni og virtust njóta þar góðs byrjar. Eftir að Háskól-
anum barst hin mikla gjöf Bandaríkjastjórnar á afmælishátíð
fyrir ári síðan, hafa verið samdar nýjar tillögur, er að þessu
lúta og sniðnar eru með það fyrir augum, að hið fyrsta sé
unnt að reisa raunvísindastofnun fyrir handbært fé. Nú ný-