Árbók Háskóla Íslands - 01.01.1964, Blaðsíða 10
8
þetta tímabil allt. Vil ég vegna Háskólans árétta þakklæti skól-
ans til vígslubiskupsins fyrir tryggð hans við Háskólann og
fyrir mikilsmetna og fágætlega langa þjónustu. Er nú svo kom-
ið, að allir þeir, sem störfuðu við Háskólann við upphaf hans,
eru horfnir frá Háskólanum, flestir þeirra yfir móðuna miklu.
Ástæða er þó til að minna á, að einn af þeim kennurum, sem
kenndi hér við Háskólann fyrsta háskólaárið, er enn á lífi og
enn sístarfandi, Ólafur Þorsteinsson læknir, sem var kennari
hér um 40 ára skeið og leysti af hendi mikilvægt kennslustarf
af einstakri vandvirkni og samvizkusemi.
Á s.l. ári hefir Háskólinn átt mörgum ágætum gestum að
fagna, og telst mér svo til, að aldrei hafi jafn margir fyrirles-
arar sótt skólann heim sem á þessu ári. Heimskunnur stjórnmála-
maður, varaforseti Bandaríkjanna, herra Lyndon B. Johnson,
heimsótti Háskólann og færði honum ágæta gjöf bóka í raun-
vísindum. Enn fremur heimsótti vísindamálaráðherra Vestur-
Þýzkalands, herra Lenz, Háskólann og flutti hér fyrirlestur.
Þá komu þrír háskólarektorar hingað til lands í boði Háskól-
ans og fluttu hér fyrirlestra, þeir dr. Watson Kirkconnel, rektor
Acadiaháskólans í Kanada, prófessor Rudolf Sieverts, rektor
Hamborgarháskóla, og prófessor Aksel Milthers, rektor Land-
búnaðarháskólans danska. Af öðrum fyrirlesurum má nefna
Dr. Christen T. Jonassen, prófessor frá Ohio-háskóla, sem hing-
að kom fyrir atbeina Fulbright-stofnunarinnar, prófessor Henry
Cowell, tónskáld frá Columbiaháskóla, dósent Asa Gruda Skard
frá Oslóarháskóla, Valdimar Líndal, dómara frá Winnipeg, Sir
George Pickering, prófessor frá Lundúnum, herra McNulty,
ritara mannréttindanefndar Evrópu, prófessor Ture Johannis-
son frá Gautaborgarháskóla, prófessor Eyvind Fjeld Halvorsen
frá Óslóarháskóla og prófessor Norman Porteous frá Edin-
borgarháskóla. Auk prófessors Hermans Ward, sem áður getur,
dvöldust hér nokkrir gistiprófessorar um lengri tíma. Má þar
fyrst nefna prófessor Gerhard M. Gerhardsen frá Verzlunar-
háskólanum norska í Björgvin, sem dvaldist við viðskiptadeild,
og er hann fyrsti prófessorinn, sem gistir Háskólann með styrk