Árbók Háskóla Íslands - 01.01.1964, Side 119
117
inda, hreinna og hagnýttra. Deildin stuðlar að sjálfstæðri rannsókn-
arstarfsemi kennara sinna og getur tekið tillit til hennar við verka-
skiptingu innan deildarinnar. Deildin stuðlar að eflingu raunvísinda
í landinu með því m. a. að vinna að bættri aðstöðu til rannsókna og
starfa á því sviði. Deildin er stjórnvöldum til ráðuneytis um kjarn-
orkumál og fleiri mál á sviði raunvísinda, eftir því sem ákveðið er
á hverjum tíma.
b. InntökuskilyrSi.
Skilyrði til inntöku í deildina er stúdentspróf úr stærðfræðideild
íslenzks menntaskóla eða sambærilegt próf. Deildin getur sett skil-
yrði um lágmarkseinkunnir í einstökum greinum eða greinaflokkum.
c. Kcnnsla og nám.
Verkfræðideild veitir kennslu í:
la. Almennum undirstöðugreinum verkfræði.
lb. Undirstöðuatriðum stærðfræðilegra greina.
lc. Einstökum raunvísindagreinum í þágu annarra deilda, eftir því
sem ákveðið er á hverjum tíma.
2. Einstökum sérgreinum verkfræði og stærðfræðilegs náms, eftir
því sem ákveðið er á hverjum tíma.
3. Deildin getur staðið fyrir námskeiðum til upprifjunar og við-
bótarnáms fyrir menn, sem lokið hafa háskólaprófi í verkfræði
eða öðrum raunvísindum.
Til fyrrihlutaprófs í byggingarverkfræði eru kenndar þessar grein-
ar: Stærðfræði, aflfræði, burðarþolsfræði, rúmmyndafræði, eðlisfræði,
efnafræði, jarð- og jarðeðlisfræði, teiknun, landmæling, húsagerð,
vélhlutafræði og félagsfræði.
Til fyrrahlutaprófs í véla- og rafmagnsfræði eru kenndar sömu
greinar nema jarð- og jarðeðlisfræði, landmæling og húsagerð. 1 stað
þeirra eru kenndar greinarnar raftæknifræði og vélhlutafræði, þegar
þátttaka er nægileg. Fleiri sérgreinar getur deildin tekið upp, þegar
ástæða þykir til og fé er veitt til kennslunnar. Nánar skal kennslu-
greinum og tilhögun kennslunnar lýst í námsskrá, sem deildin semur.
Stúdentar, sem stunda annað nám í deildinni en verkfræði, njóta
kennslunnar í fleiri eða færri ofantaldra greina eftir nánara sam-
þykki deildarinnar.
í flestum kennslugreinum eru hafðar æfingar, munnlegar, skrif-
legar eða verklegar, og skal stúdent sækja þær á tilætluðum tíma.
Deildin setur reglur um það, hversu mikil þátttaka í æfingum, og
með hverri frammistöðu, skuli skyld. Hún getur og sett ákvæði um
frammistöðu stúdents í vissum prófum, áður en hann fái aðgang að
verklegum æfingum.