Stúdentablaðið

Volume

Stúdentablaðið - 01.05.2008, Page 22

Stúdentablaðið - 01.05.2008, Page 22
HITSTKKTO Á GÖMLUM GARÐBÚA OOl.Gísli Tryggvason, sveUkáldur við Gamlagarð Sá er hér heldur á penna gerir sér það ekki til dœgrastyttingar að fara út í bœ og tala við bláóhmnugt fólk i miðri viku. Nafnið var ókunnugt, en það var svo sem ekkert rrýtt þar sem nöfn hafa aldrei verið sterkasta hlið höfundar. Byggingin var rtýleg og hafði ákveðirm glœsibragyfir sér sem segir við aUa þá sem irm í hana ganga: „Hér vinnur fólk með háskólagráður, menn með slifsi og konur með dýr gleraugu'Af svitanum í lófunum að dœma voru taugamar famar að segja til sín. „Hvernig talar maður við herramann sem maður þekkir ekki neitt' velti ég fyrir mér þegar éggekk inn ganginn á eftir ritaranum. „Gjörðu svo vel,° sagði ritarinn um leið og hún benti mér á að ganga inn. Það kom smá hik á mig áður en ég greip í hurðarhúninn og ekki laust við að ég blótaði ritstjóranum fyrir að hafa komið mér í þessa stöðu. “ÞESSI GÆJI!”, heyrði ég heilann i mér segja þegar ég gekk inn og með det samme rann allur skrekkur úr líkama mínum. „Gísli Tryggvasonkynnti þessi ljúfi maður sig. Allar formlegar kynningar voru í rauninni óþarfar af hans hálfu því um leið og ég náði að tengja nafnið við andlitið vissi ég upp á hár hver maðurinn var. Hann bauð mér upp á kaffi úr forláta maskínu og við settumst í sófasettið á skrifstofunni hans. Þar fengum við næði til að hverfa aftur til fortíðar, til námsára hans og lífs á skólagörðum Háskólans. Gísli Tryggvason tekurnú við: „Landsbyggðarfólkið sem „braust til mennta" [hlær] var fólkið sem var aðallega á görðunum, allavega þar sem ég var. Að vísu kom ég ekki af landsbyggðinni þá, heldur flutti ég frá Danmörku, þaðan sem ég varð stúdent. Þar tók ég líka eitt ár í háskóla. Ég átti því ekki foreldra 1 borginni [Reykjavík] þegar ég kom heim, þannig að eins og aðrir landsbyggðarmenn þurfti ég einhvern samastað. Þetta var mjög góður tími og ég á sælar minningar síðan. Fyrsta árið mitt í lagadeildinni var veturinn 1991- 92 og þá var ég í leiguherbergi á Hagamel á meðan ég beið eftir því að komast á Gamla garð. Þar var ágætt. Þetta var að vísu bara níu fermetra herbergi en ég var með rúm, eldhús og stofuhorn en ekkert bað. Sem skipti þó kannski engu því ég var við hliðina á Vesturbæjarlauginni sem var mjög fínt. í lok fyrsta árs komst ég inn á Gamla garð eins og ég stefndi að. Þá var ég ekki eins einangraður. Þó að ég hafi verið duglegur að bjóða heim á Hagamelinn þá var miklu meira félagslíf á Gamla garði. Þar voru að vísu ekkert mjög stór herbergi en þau voru góð. Allt annað árið mitt var ég á Gamla garði. Mig minnir að ég hafi svo á þriðja ári komist á Eggertsgötuna en þar voru ekki bara hjónaíbúðir heldur líka einstaklingsíbúðir. Þannig að ég var megnið af mínum námstíma eða námsárum á garði, alveg þangað til að égbrautskráðist árið 1997“ FÉLAGSLÍFIÐ „Það var mikið félagslíf í lagadeildinni á þessum tíma. Stúdentakjallarinn var ennþá opinn þegar ég var í Háskólanum, og var nokkuð vinsælt öldurhús. Þar voru stundum ræðukeppnir og ég man eftir einni þar sem Róbert Wessmann forstjóri Actavis fór á kostum. Ætli laganemar og viðskiptafræðinemar hafi ekki verið að keppa, ég gæti trúað því. Félagslífið var meira á Gamla garði, þar sem voru sameiginlegir gangar, eldhús og fundaraðstaða. Maður kynntist því fólki betur en ella, enda meira félagslíf, herbergin hlið við hlið á tveimur göngum eða svo. Hins vegar var kosturinn við Eggertsgötu sá að maður var meira sinn eigin herra enda með sérinngang. Það voru nú ekki allir með svoleiðis á þeim tíma. Stigagangurinn var utan á húsinu, þannig að maður fékk blöðin og bréfin beint inn til sín, sem var mikill lúxus." NETIÐ í STAÐ BÍLSINS Ég naut þess að vera í nábýli við Háskólann að og geta gengið í skólann, bæði í tíma og lesaðstöðuna í Lögbergi. Á þessum tíma var ég líka með tölvu og naut þess að geta pantað mér matvörur á netinu af vefsíðu sem hét Netkaup, nokkuð sem Hagkaup rak. Ég var með nokkuð fullkomna tölvu, átti engan bíl en fékk heimsendar vörur án nokkurs aukakostnaðar. Þetta er eitthvað sem ég sakna þvl þetta er ekki í boði í dag. Það eru 12-13 ár síðan þetta var og við erum ekki komin lengra í svona þjónustu. Þarna var markaðurinn kannski á undan sinni samtíð og mætti mínum þörfum vel vegna þess að ég vildi hvorki né gat átt bíl, enda hafði maður ekkert efni á því og þurfti þess eiginlega ekki með. Þannig að þarna fékk ég bara vörurnar sendar vikulega heim. Þetta er eitthvað sem ég sakna í dag, að geta ekki bara setið fyrir framan tölvuna, skoðað í ísskápinn og pantað matvörur heim til mín.“ INNBROTIÐ „Eitt minnistæðasta atvikið af Gamla garði var ég á sunnudagsmorgni, að ég held, þegar ég sat og drakk sunnudagskakóið mitt. Það var eitthvað farið að halla í hádegi, þá kemur stúlka af efri ganginum, mig minnir að hún hafi verið garðprófastur, hún sagði að það væri maður sem hefði annað hvort verið inni í ákveðnu herbergi eða væri þar enn að stela flöskum. Ég kom fram, og það voru nú ekki margir komnir á fætur, en ég sá þarna ungan mann í leðurjakka að staulast niður tröppurnar mikið bólstraðan að framan eins og hann hefði troðið einhverju inn á sig. Það kom svo í ljós að svo reyndist vera, hann hafði troðið mörgum áfengisflöskum inn á sig úr einhverju herberginu. Ég sá fljótt að hann var undir áhrifum og þurfti því ekki að safna miklu hugrekki til að handtaka hann borgaralegri handtöku. Ég var þá búinn að læra svokallað opinbert réttarfar og vissi að ef maður stæði mann að glæp þá mætti maður handtaka hann. Ef ég man rétt, þá þarf fangelsisrefsing að vera í refsirammanum. Þarna voru skilyrðin uppfyllt þannig að ég handtók manninn borgaralegri handtöku og hélt honum þangað til að lögreglan kom. Það voru ekki komnir farsímar víða á þessum tíma en einhver hafði komist í síma oghringt á lögreglu. Og þó að ég hafi ekki verið neitt heljarmenni að burðum þá var auðvelt að halda þessum ólánssama manni þar til lögreglan kom. Þetta eru nú einu afskipti mín af lögreglumálum. Það fyllti mig ákveðnum krafti að vita að ég væri í fullum rétti og auðvitað sjálfsagt að halda manninum þar sem þetta var augljóst húsbrot eins og það heitir víst í hegningarlögunum. Ég átti að vísu ekkert af þessu áfengi sem hann var með, því ég var ekki með svona lager á þeim tíma eins og sumir, því miður. En af öðrum garðbúum sem ég man eftir, þá stytti Davíð Ólafsson söngvari okkur stundir með söng, hann var þá að læra íslensku að ég held en var samhliða að læra söng, þar held ég að hugur hans hafi verið, enda fór hann síðar í meira söngnám." Gísli var í lagadeildinni frá 1991 til 1997 en tók sér eins árs hlé þegar hann var á þriðja eða fjórða ári. Árið nýtti hann í vinnu við að endurskoða vinnulöggjöfina á vegum Félagsmálaráðuneytisins, sem var á sínum tíma umdeild löggjöf en hefur síðan þá sannað gildi sitt. Gísli segir að kannski hafi smá námsleiði enn fremur spilað inn í þá ákvörðun að taka sér stutt hlé. „Sú vinna leiddi mig svo óbeint inn í vinnu fljótlega eftir nám hjá Bandalagi háskólamanna þar sem ég var lögmaður og framkvæmdastjóri í tæp sjö ár þar til ég tók við nýju embætti talsmanns neytenda um mitt ár 2005.“ Gísli Tryggvason starfar enn sem talsmaður neytenda og er með skrifstofu hjá Neytendastofu. ■

x

Stúdentablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Stúdentablaðið
https://timarit.is/publication/350

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.