Heimir : söngmálablað - 01.12.1938, Qupperneq 13
H E I M IR
89
komu út 1924. Fáein lög eru þarna við gamla liúsganga,
en þó hefir höf. ekki brennl sig á þeim öllum, ]jví að
lögin „Á sprengisandi“ og „Sumarnótt“ (Sólu særinn
skýlir) eru hugþekk lög, með hreimþýðum, skáldleg-
um blæ, og kennir lians viða í lögum Árna. Ennfrem-
ur vil ég nefna lögin „Öll él birtir upp um síðir“, „Ljós-
iö loftin fyllir“ og „Við bafið“ (Hún sveif þar vfir
vogi), sem karlakórar vorir þurí'a að gefa meiri gaum
en hingað til. Ýmislegt óprentað á Árni til í fórum sín-
iim, eins og karlakórslagið „Island, vort land“, og ein-
söngslagið „Miðsumar“ (Oft finnst oss vort land) o. fl.
Árni Tiiorsteinsson er maður fríður sýnum, prúð-
mannlegur í allri framgöngu og ber það með sér, að
bann er af höfðingjum komin'n. Hann er vfirlætislaus
og góðgjarn, og kemur mér jafnan í liug enska orðið
„gentleman“, þegar ég heyri lians g'etið, þvi ég befi
fáa menn þekkt, sem mér finnst það orð eiga betur
við en liann, eins og það er rétt skilið.
T 0 S C A N I N I.
E F TIR DA V í Ð E W E N.
Árið 1886 ferðaðist ítalskur óperuflokkur til Suður-
Ameríku. Hljóðfæraleikurunum og söngvurunum var
beldur i nöp við stjórnandann, og þegar flokkurinn
kom til Rio de Janeiro yfirgaf bann stöðu sina fyrir-
varalaust. Óperan, sem sýna átli þetta kvöld, var „Aida“,
og allir aðgöngumiðar voru seldir. Forstjórinn bölvaði
i hljóði. Ilvernig átli bann, á siðasta augnabliki, að fá
annan stjórnanda?
Nokkrir hljóðfæraleikendur klifruðu bak við tjöldin
til þess að gera honum tilboð. I liljómsveitinni var ung-
ur, óframfærinn cello-leikari, Arturo Toscanini, sem
margsinnis hafði sýnt, að hann var sérstaklega kunnug-