Búnaðarrit - 01.01.1937, Page 24
4
B Ú N A Ð A R R I T
skýrt frá um búnaðarmálastjóra, fyr en 1. júlí, en frá
þeiin degi var Steingrími Steinþúrssyni skólastjóra á
Hólum veitt staðan eftir ábendingu og einhliða ósk
landbúnaðarráðherra, með atkvæðuin form. og ritara á
fundi 15. maí. Hinsvegar vildi Magnús Þorláksson
enn veita Árna G. Eylands stöðuna, en til samkomu-
lags vildi hann gefa ráðherra kost á að velja á milli
Eylands og Pálma Einarssonar, en þeir höfðu báðir
sótt um stöðuna, ásamt Steingrími og undirrituðum,
eftir að stjórnin auglýsti hana til umsóknar 18. apríl,
samkvæmt ályktun Búnaðarþings.
3. Búnaðarlilað.
Svo senr skýrt cr frá í skýrslu um Búnaðarþing 1935,
tölul. 4, lagði þingið fyrir stjórnina að hefja útgáfu
búnaðarblaðs frá ársbyrjun 1936, og heimilaði henni
að kaupa upplagið af Frey, el' um semdist við eiganda
hans, Sigurð Sigurðsson. Þau kaup voru endanlega
ákveðin á í'undi 31. maí og var kaupverðið kr. 2000 á
nafni blaðsins og óseldu upplagi, en áhvílandi og úti-
standandi skuldir eru kaupunum óviðkomandi.
í sambandi við veitingu búnaðarmálastjórastöðunn-
ar lagði Iandbúnaðarráðherra áherzlu á, að útgáfa
blaðsins yrði hafin þá í júnímánuði og hét því í nafni
ráðuneytisins „að greiða þann halla, sem kann að
verða á rekstri blaðsins“, meðan því eru ekki tryggð-
ar tekjur á annan hátt svo að það beri sig, en bendir
i því sambandi á, „að ef til vill væri eðlilegt að gera
blaðið á sínum tíma að félagsblaði allra búnaðarfé-
laga landsins", (á sennilega við meðlimi hreppabúnað-
arfélaganna). Á þessum grundvelli var ákveðið á
stjórnarfundi 15. maí að hefja útgáfu blaðsins í júlí
og undirritaður þá jafnframt ráðinn ritstjóri, með sam-
þykki landbúnaðarráðherra, er „telur það fyrir margra
hluta sakir eðlilegt“.