Búnaðarrit - 01.01.1937, Síða 41
BÚNAÐARRIT
21
Hallgrimur Þórarinsson, Kctilsstöðum, Völlum.
Þorsteinn Stefánsson, Þverhamri, Breiðdal.
Jón Eiriksson, Volaseli, Lóni.
Hjá Búnaðarsambandi Suðurlands:
Kristján Karlsson, skólastjóri, Hólum (1935).
Ólafur H. Jónsson, Stóra-Hofi, Rangárvölium (1936).
Þorsteinn Þ. Vigiundsson, skólastjóri, Vestmannaeyjum.
Þorsteinn Sigurðsson, Vatnsleysu, Biskupstungum.
Dagur Brynjólfsson, Gaulverjabæ, Flóa.
Eftirlit nieð störfum trúnaðarmanna, er sumpart
framkvæmt með því að ferðtist á milli þeirra og athuga
á hvern hátt þeir framkvæma úttekt og mat jarðabóta,
sumpart með því að svara fjölda fyrirspurna frá trún-
aðarmönnum um ýms atriði varðandi starf þeirra
og úrskurða ýms vafaatriöi er fram kunna að koma í
því sambandi, og loks með því að endurskoða mælinga-
skýrslur trúnaðarmanna jafnótt og þær berast til fé-
lagsins.
Þessi árin heíir þetta eftirlit af hálfu félagsins verið
i höndum húnaðarmálastjóra og jarðræktarráðunauts
félagsins.
Eins og kunnugt er, lét ríkisstjórnin endurskoða
jarðræktarlögin frá 1923, áður en Alþingi kom saman
árið 1936. Alþingi samþykkti siðan hin nýju jarð-
ræktarlög. Er þar um allmiklar hreytingar að ræða,
frá því sem var í hinum eldri lögum, sumpart að því
leyti, er snertir aðstöðu Búnaðarfélags íslands til ríkis-
valdsins, og sumpart er um að ræða allmikla stefnu-
hreytingu, á hvern hátt styrkur er veittur til ræktun-
arframkvæmda. Þessar breytingar hafa valdið miklu
umtali og ókyrrð hæði innan Búnaðarfélagsins sjálfs
og í hinum pólitísku erjum stjórnmálaflokkanna. Enn
er ekki séð, hvernig þeim málum kann að ljúka að lok-
um, og verður því ekki komið frekar inn á þau hér.