Búnaðarrit - 01.01.1937, Page 59
BÚNAÐARRIT
14 jarða í Norðfjarðarhreppi og mældi þar einnig fyrir
þurkskurðum á 5 bæjum. — Frá Austfjörðum fór ég
til Eyjafjarðar. Mældi fyrir þurkskurðum á Svalbarði
og á ræktunarlandi Akureyrarbæjar; mældi 2 jarðir
við Akureyri — Mýralón og Kollugerði — sem fyrir-
hugaðar eru til ræktunar.
Frá Akureyri skrapp ég út í Höfðahverfi, til að at-
huga Gljúfurá, sem veldur skemmdum á engjum að-
liggjandi jarða. Aðstaðan er slæm til að verjast ánni.
Helzt mun ráðlegt að hyggja garða meðfram lienni, en
þeir verða tillölulega dýrir.
í þessari ferð mældi ég fyrir vatnshrút á Nolli við
Eyjafjörð. Björn bóndi kvaðst hafa leitað álits tveggja
fræðimanna, sem þar voru á ferð saman fyrir nokkr-
um árum síðan, hvort ekki væri hægt að koma við
vatnshrút, en þcir álitu slíkt fjarri lagi. Björn hafði
eytt miklu fé í dælur, sem reyndust haldlitlar, því
vatninu þurfli að lyfta nokkuð hátt. Og þegar ég sagði
honum að aðstaðan fyrir vatnshrút væri í hezta Iagi,
varð hann glaður við, og hrútnum kom hann fyrir þá
um haustið með góðum árangri.
Þar, sem eigi er hægt að koma við sjállTennandi
vatnsleiðslu, en skilyrði eru fyrir hendi fyrir vatns-
hrút,1) ættu menn ekki að nota dælur. Þurfi að lyfta
vatninu hátt, eru dælurnar dýrar, erfiðar og endast
illa.
Um haustið mældi ég fyrir um 18 km. af þurkskurð-
uin á landi Kaldaðarness og Sandvíkur í Flóa. Land
þetta hefir ríkið fengið upp í stofnkoslnað Flóaáveit-
unnar, og er það nú fyrirhugað til nýbýlastofnuna'r,
en þurrkun landsins verður unnin sem atvinnubóta-
vinna.
í október fór ég með sandgræðslustjóra til Víkur í
Mýrdal. Mældum við þar sandgræðslusvæði og fyrir
1) I Búfræðingnum, III. árg. 1936, cr leiðbeinandi ritgerð um
vatnahrúta.