Búnaðarrit - 01.01.1937, Blaðsíða 158
BÚNAÐARRIT
138
inn þann hlut af giðingunni, sem slcógræktin kostaði,
varð J)á samkomulag milli min og bóndans um að hann
keypti líka hluta sandgræðslunnar því verði, sem tveir
matsmenn, scju sýslumaður útnefndi, álitu sannvirði.
(i. júlí var hyrjað að girða Stóra-Klofa og Borgar
land, þ. e. færa út og stækka sandgræðslugirðingarnar,
sem þar voru. Til þess að geta tekið og girt það mesta
og hættulegasta sandflæmi, sem þar lá að, þá keypti ég
f. h. Sandgræðslu íslands eyðijörðina Mörk, og tók inn
i girðinguna það ai' landi hennar, sem bezt var og litið
skemmt, og svo allan þann sand, sem liættulegastur
var og mest hætta stafaði frá. Enn er eftir að girða
nokkurt svæði af landi Stóru-Valla og Klofatorfunnar.
13. júlí ior ég austur í Skaftafellssýslu, fyrst um Vík
í Mýrdal. Eftir það aðgætti ég sandgræðslugirðingarnar
á Hnausum í Meðallandi, og hjá Kirkjubæjarklaustri.
Gróðurinn fer vel að á öllum þessum stöðum, en er
lengst kominn á veg hjá Hnausum, sem von er til,
því að þar er elzta sáningin. Einnig leit ég eftir sand-
foki á Lyngum og Leiðvelli í Leiðvallahreppi.
28. júlí fór ég til Reykjavíkur og ineð Brúarfossi vest-
ur til Bolungarvíkur. Skoðaði ég sandgræðsluna þar
og gerði ráðstafanir, sem mest voru aðkallandi. Nú er
húið að mæla út yfir tuttugu ræktunarlóðir af sand-
svæðinu í Bolungavík. Ræktuninni miðar auðvitað ekki
ört áfram, en þar eru þó straumhvörf, þegar girt var
eyðilagði sandfokið hæði tún og byggingarlóðir, en nú
er sandfokið að mestu stöðvað og farið er að rækta tals-
vert af kartöflum, og þar eru líka að koma smá tún-
blettir. Nú er verið að leggja akveg yfir sandgræðslu-
svæðið, og ætti að vera hægra að taka ræktunarlóðir
út i'rá honum, þegar hann er fullgerður og tekinn i
notkun.
Að vestan kom ég 4. ágúst. Var unnið að girðing-
um i Landsveitinni til 18. ágúst, en þá var flutt til Eyr-
arbakka og unnið þar um hálfsmánaðartíma,