Búnaðarrit - 01.01.1937, Page 177
BÚNAÐARRIT
157
B. Efnislegar ástæður.
Þessar ástæður, sein byggjast beint á I. kafla jarð-
ræktarlaganna og efni hans, falla aðallega í tvo flokka,
vegna þess, að megin agnúarnir, sem snúa að Bún-
aðarfélagi íslands, eru í tveimur greinum þessa kafla,
2. málsgr. 2. gr. og 7. gr. Þó grípur þetta nokltuð inn í
aðrar greinar þessa kafla, svo sem 3. gr. og C. gr.
I. Önnur málsgrein 2. greinar hljóðar þannjg: „Með-
an Búnaðarfélag Islands fer með mál þessi, skal val
búnaðarmálastjóra bundið samþykki landbúnaðarmála-
ráðherra".
Gegn réttlæti þessa ákvæðis færum við eftirfarandi
rök:
a. Það er engin nauðsyn fyrir ríkisstjórnina að hafa
íhlutun um val búnaðarmálastjóra, því mál þau er
Búnaðarfélagi íslands eru falin lil framkvæmdar af
ríkisvaldinu, eru ýmist fastbundin af lögum, sem Al-
þingi setur, reglum, sem Stjórnaráðið setur, og frani-
kvæmdin heyrir beint undir eftirlit og yfirráð land-
búnaðarráðh. Ríkisvaldið getur því hvenær sem þörf
krefur gripið inn í framkvæmdina og verður því eigi
séð, að því sé nein nauðsyn að hafa umboðsmann í
Búnaðarfélagi Islands hennar vegna, enda cru málin
falin Búnaðarfélagi íslends til framkvæmda, en ekki
ákveðnum starfsmanni þess.
b. Ætti þetta ákvæði að hafa nokkurt gildi fyrir
ríkisstjórnina, yrði að gera ráð fyrir að búanaðarmála-
stjóri væri alltaf í samræmi ,við rikjandi stjórn og
hann stæði því og félli með ríkisstjórninni. Að öðrum
kosti getur íhlutunin um búnaðarmálastjórann aðeins
haft gildi fyrir þann landbúnaðarráðherra eða þá
stjórn, sem með völdin fer, þegar búnaðarmálastjóri
er ráðinn. Má búast við því, að þegar sú regla væri
einu sinni upp tekin, mundi viðtakandi landbúnaðar-
ráðherra una þvi illa, að búa við þann húnaðarmála-