Búnaðarrit - 01.01.1937, Síða 229
BÚNAÐARRIT
20!»
tillögur séu þess eðlis, að ekki geti komið til mála,
að verða við þeim.
Með lögum um fóðurtryggingarsjóði sem sam-
þykkt voru á síðasta Alþingi, er rétt fram hönd til
stuðnings þeim mönnum, er tryggja vilja l)úfé sitt,
án .þess þó að stofna eftirlits- og fóðurbirgðafélög.
Hugsanlegt er að stofnun slíkra sjóða kynni eitt-
hvað að tefja fyrir framkvæmd fóðurbirgðafélags-
skapar, og teldi nefndin það illa farið, og vill því fá
lögunum breytt í þá átt, sem till. undir 2. tölulið hér
að framan greinir.
Með skírskotun til þess sem nú hefir sagt verið,
og með hliðsjón af því, að mikið af búfé margra
bænda landsins er nú orðinn veðbundinn stofn, þá
verður ekki annað sagt, en að svo mikið liggi við að
koma þessum málum svo vel fyrir, að allt sé tryggt,
og að ef önnur ráð þrjóta eða reynast óviss, þá sé
alveg óhjákvæmileg nauðsyn að leita aðstoðar lög-
gjafar til þess að ná settu marki. — cftirlits og fóðtir-
birt/ðafclag í hverri sveit landsins.
Framanskráðar tillögur voru samþykktar með 13
samhlj. akv.
Undir síðari umræðu málsins kom fram svohljóð-
andi viðaukatillaga frá Kristni Guðlaugssyni, og var
hún sömuleiðis samþykkt með 13 samhlj. atkv.
„Búnaðarþingið ályktar, að beina þeirri áskorun til
allra sýslunefnda og hreppsnefnda á landinu ,að sjá
um það, að þar til fóðurbirgðafélög komast á, verði
lög nr. 44, 10. nóv. 1913. um forðagæzlu, svo og lög
nr. 50, 8. sept. 1931 um breytingu á þeim, framkvæmd
svo ýtarlega, sem framast er unnt, og þannig, að forða-
gæzlan nái þeim tilgangi sínum, að koma í veg fyrir
ógætilegan ásetning og fóðurskort.“
u