Búnaðarrit - 01.01.1937, Page 285
B Ú N A Ð A R RIT
265
Auk þess séu haldin námskeið í Reykjavík
fyrir húsasmiði í sveitum, til þess að gera þá sem
hezt færa um að standa fyrir húsagerð sveitanna.
Jafnframt með það fyrir augum, að einhverjir
þeirra geti orðið byggingameistara Búnaðarhank-
ans til aðstoðar við leiðbeiningar og eftirlit með
byggingum í sínum héruðum.
Byggingar- og landnámssjóður og Ræktunar-
sjóður leggi til kennslukrafta á þessi námskeið,
en húnaðarsambönd eða aðrir hlutaðeigandi að-
ilar annist undirhúning þeirra utan Reykja-
víkur.
II. Að bændum verði séð fyrir nauðsynlegum og hag-
kvæmum lánum til endurbyggingar ibúðarhúsa í
sveitum og þá helzt á þann veg:
1. Að Byggingar- og landnámssjóði verði heimilað
fyrst um sinn að gefa út vaxtabréf að upphæð
allt að 200 þús. kr. á ári með 3% vöxtum, og að
bréfin verði undanþegin tekju- og eignaskatti.
2. Að ríkisjóður hlutist til um, að Ræktunarsjóður
hafi ávallt nægilegt fé til útlána, meðal annars
á þann hátt, að Brunabótasjóði Islands og Trygg-
ingarstofnun ríkisins sé skylt, eftir því sem
stjórn Ræktunarsjóðs telur nauðsynlegt, að verja
að minnsta kosti því fé, sem inn kemur úr sveit-
um landsins árlega og þeim ekki er nauðsyn-
legt rekstrarfé, til kaupa á jarðræktarhréfum.
3. Að ákveðið verði í reglugerð Ræktunarsjóðs, að
lán til íhúðarhúshygginga í sveitum megi því að-
eins veita, að stjórnin hafi samþykkt teikning-
inguna og að sjóðstjórnin hafi eftirlit með þeim
byggingum, sem fé er lánað til úr sjóðnum.
4. Að ríkissjóður greiði fyrst um sinn, vegna þeirra
bænda, er byggt hafa varanleg íbúðarhús á jörð-
um sínum, vaxtatillag, er samsvarar því, að vextir
af þeim fasteignaveðslánum, er sannanlega eru