Dvöl - 01.01.1937, Qupperneq 18
12
b V Ö L
hana upp að nýju og gera hana
svo úr garði, að hún rekist ekki
verulega á niðurstöður raun-
hæfra vísinda. Það er gerð til-
raun til að steypa hina fornu
guðshugmynd í það form, að
hún rekist sem minnst á heil-
brigða skynsemi: Guð er nafn,
sem vér gefum lífi alheimsins!
Ég held nú að það sé mesti
misskilningur hjá séra Benjamín
að hann þurfi að berjast við
bókstafstrúuð vísindi um guðs-
hugmynd sína.
Skoðanir vísindamanna á t. d.
alheimsorkunni munu ekki
breytast neitt þótt hún yrði tek-
in í guðatölu. Hinsvegar held ég
að hinu gamla og góða guðs-
nafni væri þar með gefin alger-
lega ný merking, sem mér er
mikið efamál að ætti miklum
vinsældum að fagna hjá strang-
trúuðum mönnum hér á landi
eða annars staðar.
Það er að sjálfsögðu þýðing-
atflítið atriði að karpa um
gamlar og nýjar guðshugmynd-
ir. Kjarni kristindómsins, hið
eina, sem getur gefið honum æ-
varandi gildi erekkiþarað finna,
heldur í kenningum Krists sjálfs
— einföldum og óskemmdum af
orðskrúði og útþynningu kirkj-
unnar fyrr og síðar. Hinn mikli
siðbótamaður — Kristur — var
svo mikill spámaður, svo vitur
og svo langt á undan sinni sam-
tíð, að boðskapur hans er ein-
mitt nú á dögum í fullu sam-
ræmi við þau lög og þá mannúð,
sem ætti að ríkja í siðuðu,
menntuðu og þar af leiðandi
kristnu þjóðfélagi — en gera
það aðeins ekki nema að litlu
leyti.
Og nú spyrja margir, m. a. í
þeim erindum, sem flutt verða
hér í kvöld, hvert sé í raun og
veru ætlunarverk kirkjunnar í
framtíðinni, ef hún eigi að verða
langlíf í landinu.
Þeir spyrja hvort það sé ekki
fremur verkefni hennar að láta
sér ekkert mannlegt óviðkom-
andi hér á jörð heldur en að
fást við að halda þokukenndum
guðshugmyndum að mönnum og
heldur en að halda á lofti ein-
stökum setningum, sem hafðar
eru eftir Kristi, er aðeins sýna
það, að hann var þrátt fyrir allt
að nokkru leyti barn sinnar sam-
tíðar, en koma að öðru leyti
ekki við þeim kjarna í boðskap
hans, sem á erindi til vor nú á
dögum.
J6n Eypórsson.
„Deilan um drottinn".
Og nú eins og áður menn ætla pað stríð
sé einkum um sannleikann háð.
En kirkjur, sem ástmeyjar, hyllast páhelzt,
scm hafa mest skildingaráð.
St. G. St.