Dvöl - 01.01.1937, Qupperneq 31
Met í háflugi
Eflir Lion Feuchtwanger
Það var 2. júlí, og steikjandi
hiti, þegar Victor Crecy undir-
foringi lagði af stað kl. 10,20 f.
h. til þess að hrinda heimsmet-
inu í háflugi, ,en það var 11,702
metrar. Vísindamönnunum var í
lófa lagið að reikna út, hvað flug-
vél gæti komizt hæst. Hins veg-
ar hafði ekki tekizt, þrátt fyrir
ítrekaðar tilraunir á fjöldamörg-
um rannsóknastofum, að ákveða
með vissu, í hvað mikilli hæð
menn gætu lifað. Fimm flugmenn
voru nu þegar búnir að gera fyr-
irfram skipulagðar og hnitmið-
aðar tilraunir til að setja met.
Crecy undirforingi var sá sjötti.
Vélin hans „Marie Lemaire“
(S. A. III 26) sv,eif í stórum
hringum upp í þunnt, storma-
samt gufuhvolfið. Því að sterkur
austanvindur blés þarna sí og æ,
úr því loftið fór að þynnast nokk-
uð að ráði. Sjóndeildarhringur-
inn hækkaði ásamt vélinni ,,Ma-
rie Lemaire“ og fjarlægðist og
óskýrðist. Crecy undirforingi hélt
hærra og hærra, hægt og gæti-
lega. Hann vissi, að mannslíkam-
inn þolir ekki að fara í einu vet-
fangi upp í svona mikla hæð,
lofttómið sýgur miskunnarlaust
í sig það litla loft, sem hann hef-
ir í fórum sínum, og dregur þann-
ig blóðið út úr húðinni.
Þótt ferðinni virtist miða hægt
upp á við, leið samt ,ekki á löngu
áður en undirforinginn var kom-
inn upp í hin ísköldu háloft. Eitt
og eitt ský varð á vegi hans, snjó-
él, sem kom einhvers staðar utan
úr víðáttunni og aldrei myndi ná
til jarðar .... Aleinn sveif hann
áfram.
Hæðarstýrið á 280 hestafla
vélinni hans var á stöðugri hreyf-
ingu, við og við mátti greina blöð
skrúfunnar. En flugmaðurinn
veitti því enga eftirtekt. Hann
hafði ekki augun af mælinga-
tækjunum. Það vay langt síðan
borgirnar urðu eins og lófastórir
blettir og hurfu svo alveg, og
árnar eins og grannir þræðir og
hurfu líka. Ekkert hljóð heyrð-
ist, nema ganghljóð hreyfilsins.
Þetta eyðitóm hafði ekkei’t inni
að halda, nema hann og vélina
hans.
Crecy undirforingi var tuttugu
og átta ára gamall. Tvisvar hafði
hann vakið á sér athygli fyrir
frábæran dugnað. Nú hafði hann
sett sér það takmark að leggja
fyrir Alþjóða-loftferða-samband-
ið í París innsigluð mælingatæki,