Dvöl - 01.07.1941, Side 18

Dvöl - 01.07.1941, Side 18
176 DVÖL í suðaustur, og innan stundar kom- um við að Suðrá aftur, þar sem hún rennur ofanjarðar. Götur. eru engar, þegar dregur inn í hraunið. Þetta er helluhraun og allóslétt. Tryggvi þræðir lægðirnar. Það hefir fokið í þær sandur, og það er því mýkra undir fæti. Við komum að gamalli hraunbrún og fylgjum henni um skeið. Hún stefnir beint á noröausturhorn Dyngjufjalla. — Nýrra hraunið er sunnan og vestan við okkur og ber allhátt. Sandur hefir fokið í löggina meðfram hraunbrúninni og er þar því all- góður vegur. Brátt beygir hraun- brúnin til suðurs og sleppum við henni þá, en tökum steínuna á Dyngjufjöll. Nú tekur við vandrataðasti kafli leiðarinnar um hraunið, því að hér er ekkert til að glöggva sig á. Enn er yfir helluhraun að fara, og við verðum ekki vör við sprungur, svo að leiðin er ekki hættuleg. Það er farið að birta allmikið, og ég fer að svipast um eftir gróðri. En hér er bókstaflega enginn gróður, ekki einu sinni mosi né skóf. Ég minnist orða skáldsins um hraunið: „Sérðu blómstur, sérðu strá, sérðu gróður jörðu á? — Eilíf, eilíf ógn og hrjóstur." Meðfram Dyngjufjöllum er all- breitt sandbelti. Þar látum við klár- ana brokka, því að leiðin er löng og okkur sækist seint. Enn erum við ekki tekin að þreytast að mun. En ef til vill er í okkur þreytukvíði. Uppi við fjöllin er ofurlítil meltó. Þar er áð og hestarnir fá að grípa niður. Við þurfum líka að fá okkur hressingu. Hestarnir eru ókyrrir. Þeir fella sig ekki við melinn. Við stönzum því aðeins stutta stund. Höldum senn af stað austur með fjöllunum, eftir greiðfærum og mjúkum sandinum og förum greitt. Dyngjufjalladalur opnast nú til suðurs. — Hann klýfur Vestur- Dyngjufjöll frá aðalfjöllunum. Hér eru vegamót á vegleysum. Tryggvi ráðfærir sig við okkur, hvort fara skuli Dynjufjalladal og riða alla leið niður að Öskjuvatni, sem er í Öskju sunnan- og austanverðri, eða að fara Jónsskarð, sem liggur í austur í gegnum fjöllin í Öskju norðvestanverða. Sú leið er allmikið styttri. Sá á kvölina, sem á völina. Við vitum ekki, hvað segja skal. í raun og veru langar mig meira til þess að koma að vatninu, en ég vil ekki kjósa. Tryggvi vill heldur fara skarðið, og hann ræður. Við erum komin spölkorn austur fyrir dalsmynnið. Til vinstri handar við okkur er strýtumyndað mó- bergsfell, Lockstindur. Sólin er að koma upp. Undir þessum tindi gisti enskur ferðamaður og brennisteins- útflytjandi eina stórhríðarnótt á ofanverðri öldinni sem leið. Hvað dró hann að fjöllunum? Ekki hags- von eða frýjuorð annarra, heldur þráin eftir hinu óþekkta. Heiður sé þér, mannsandi. Þú glímir við gáturnar og lætur einkis ófreistað til þess að fá þær ráðnar. Til þess getur þú fórnað öllu. En hvenær

x

Dvöl

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dvöl
https://timarit.is/publication/619

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.