Dvöl - 01.07.1941, Blaðsíða 31

Dvöl - 01.07.1941, Blaðsíða 31
D VÖL 189 ellinni. Hann vildi fá drenginn sinn aftur; það var allt og sumt, sem gullneminn bað um. En And- rés smiður sá enga ástæðu til hlý- legrar framkomu. Ekki svo að skilja, að hann bæri þungan hug til föður síns fyrir það, að hann hafði á sínum tíma strokið frá þeim mæðginunum, enda mundi hann ekkert eftir því, og yfirleitt var ekki til hjá Andrési smið sú hvöt að rísa gegn ranglætinu. Ef til vill hafði það verið gert í góð- um tilgangi. Dag nokkurn sagði faðirinn eitthvað í þá átt — og hann gat haft nokkuð til síns máls — að það væri ekki svo fjarri lagi að freista gæfunnar erlendis, þeg- ar þess væri meinað heima. ÞaÖ Var ekki vist, að Lavst Eiríksson hefði haft í hyggju að yfirgefa konu og barn fyrir fullt og allt. Það gat hafa verið hugmyndin aö fara burtu og koma aftur heim, fjáður og vel megandi, ef vel gengi. Það var vandalaust að jafna málið, hvað þá hlið snerti. En Andrés smiður beið, og hafði tíma til að bíða þess, að gamli maðurinn léti eitthvað uppskátt um heimkomu sína, hvort hann myndi verða byrði eða hvað. En Lavst Eiríkson vildi sízt af öllu hreyfa þeirri hliö hiálsins. Það var eins og hann hefði eins konar eðlisávísun, sem réði honum til þess að reyna son- inn með því að þegja um ástæður sínar. Og þess vegna fór svo, að heir hófu aldrei máls á þessu í ein- iægni. Gullneminn, sem hversdagslega var ramefldur og ódrepandi vinnuþjarkur, líktist gömlum manni á hverjum sunnudegi, þeg- ar hann nálægðist smiðshúsið. Hann var þá ekki í þessum ein- kennilegu, amerísku vinnufötum, samfestingnum, heldur bláum jakka með gljáandi hnöppum og brjósthlíf. Hann kom alltaf um níu-leytið og jafn stundvíslega sást hann ganga frá húsi sonar síns klukkan tíu, þegar farið var í kirkjuna. Lavst kom aldrei í kirkju. Hann fór ávallt beint heim til sín. Fólk, sem mætti honum, heyrði, að hann talaði við sjálfan sig. Hann horfði niður fyrir fætur sér. En enginn skildi hvað hann sagði, því að við sjálfan sig talaði hann ensku. Það spunnust um hann sögur, þetta ár þarna í sveitinni. Enginn kynntist hon- um. En þó að Lavst Eiríksson hefði orðið kaldmáll og stuttur í spuna úti í hinum ókunnu lönd- um, átti hann þó til meira af mildi og hlýju en venjulegt bændafólk. Það sást á því, hve stundvíslega og dyggilega hann kom í bæinn sunnudag eftir sunnudag og gekk inn í vinnu- stofuna, þar sem þessi langi og linjulegi kistusmiður stóð og hefl- aði, sneri að honum bognu bakinu, þagði og lét sem hann væri ekki til. Svo þegar gullneminn stóð þarna kyrr og sonurinn næstum gleymdi honum, varð hörkulegt
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92

x

Dvöl

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dvöl
https://timarit.is/publication/619

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.